Morgunverðarfundur 12.Jan: Komandi Kjarasamningar

Kæru félagar.

Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir góðar stundir á liðnum árum.

Fyrsti fundur ársins hjá Sjálfstæðisfélaginu í Garðabæ verður haldinn næsta laugardag, þann 12. janúar kl. 11-12. Þá tökum við fyrir mikilvægt viðfangsefni, komandi kjarasamninga.

Sérstakur gestur verður Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Boðið verður upp á rúnstykki og ljúffengt bakkelsi.

Við hlökkum til að taka á móti þér.
Bestu kveðjur, Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ.

Þökkum fyrir komuna í Jólakakóið

Kæru vinir

Kærar þakkir fyrir komuna í jólakakóið síðastliðinn Laugardag. Þetta er ein af skemmtilegri hefðum félagsins, og þó að Pálmar píanómeistari hafi ekki getað verið með okkur að þessu sinni myndaðist þó virkilega skemmtileg stemning. Takk fyrir komuna.

Hér má svo sjá myndir frá jólakakóinu:

Jólakakó 1.desember

Aðalfundur fulltrúaráðs 3.desember

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ

  • Mánudagur – 3. desember 2018,  kl. 18:00, Félagsheimili sjálfstæðisfélaganna, Garðabæ.

 

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ verður haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisfélags Garðabæjar að Garðatorgi 7, Garðabæ, mánudaginn 3. desember 2018 kl. 18:00.

Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.

Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.

 

Aðalfundur Hugins f.u.s. 29.nóvember

Huginn boðar til aðalfundar.

Aðalfundur Hugins verður haldinn fimmtudaginn, 29. nóvember næstkomandi. Fundurinn fer fram í Sjálfstæðisheimilinu í Garðabæ, að Garðatorgi 7, kl. 18:00. Kosið verður um níu manna stjórn og varastjórn.

Framboð skulu berast í síðasta lagi þann 27. nóvember í einkaskilaboðum hér á síðu Hugins.

Kveðja, stjórn Hugins.

Þriðjudagsfundur um Samgöngumál

Fyrsti Þriðjudagsfundur vetrarins fór fram í gærkvöld og mæting var framar vonum. Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður bæjarráðs og Sigurður Guðmundsson formaður skipulagsnefndar ræddu samgöngumál, en bæjarstjórn Garðabæjar hefur gagnrýnt samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir að taka lítið tillit til uppsafnaðrar framkvæmdaþarfar á Höfuðborgarsvæðinu.
 

Hugmyndin með Þriðjudagsfundunum er að líta okkur nær og fjalla um málefni í nærsamfélaginu og sveitarfélaginu Garðabæ. Laugardagsfundirnir okkar verða þó áfram á dagskrá, en þar höfum við oft fjallað um málefni flokksins á breiðari grunni og fengið góða gesti úr landspólitíkinni.

Myndir frá fundinum má finna á Facebook síðu félagsins:

Glæsilegur morgunverðarfundur með Bjarna Benediktssyni

Fyrsti morgunverðarfundur vetrarins var haldinn í dag, 10.nóvember 2018. Á fundinum hélt Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra framsögu um stöðuna í efnahagsmálunum. Að framsögu Bjarna lokinni var opnað fyrir spurningar úr sal og skemmtilegar umræður sköpuðust um hina ýmsu þætti efnahagsmála.

Glærurnar sem Bjarni notaði má finna hér, en gaman er að rýna þær vandlega til að glöggva sig á þeim tölum sem Bjarni fór yfir.

Næsti fundur er áætlaður Þriðjudaginn 20.nóv, en á Þriðjudagsfundum er hugmyndin að við lítum okkur nær og ræðum málefni sveitarfélagsins og fáum til þess góða gesti.

Myndir frá fundinum í dag má finna hér:

Morgunverðarfundur 10.Nóvember

Laugardaginn 10.nóvember n.k. verður fyrsti morgunverðarfundur vetrarins í nýuppgerðu félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins að Garðatorgi.

Framsögumaður er Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, en yfirskrift fundarins er ,,Horfur í efnahagsmálum’’.

Við vonumst til að sjá sem flesta á fundinum, en boðið verður upp á morgunverð. Fundurinn hefst kl. 11:00.

Glæsileg opnun félagsheimilis

Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins hefur tekið miklum stakkaskiptum síðustu misseri, en kominn var tími á allsherjar yfirhalningu á aðstöðu félagsins. Veggir voru fjarlægðir, nýtt gólfefni sett á auk ýmissa smærri breytinga. Það er von stjórnar félagsins að félagsheimilið verði enn betur nýtt í kjölfar breytinganna og starfsemi félagsins eflist við þessa bættu aðstöðu.

Myndir frá Opnunarteiti félagsheimilisins má finna hér á Facebook síðu félagsins: