Þriðji Orkupakkinn: Ráðherrar skýra stöðu mála

Sjálfstæðisfélögin í Garðabæ og Kópavogi boða til sameiginlegs fundar á laugardaginn 27. apríl kl. 11:00 – 13:00 í Salnum í Kópavogi.  Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, fara yfir stöðu mála varðandi þriðja orkupakkann.  Þau munu skýra sín sjónarmið og draga fram mögulegar sviðsmyndir.  Fundarstjóri verður Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.

Á fundinum munu Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, atvinnuvega-, ferðamála-, nýsköpunar- og dómsmálaráðherra fara yfir stöðu mála, skýra sín sjónarmið og draga fram mögulegar sviðsmyndir varðandi þriðja orkupakkann.

 

Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs

 

Hlekkur á facebook viðburð

Góð heimsókn þingflokksins

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom til fundar við Garðbæinga í morgun, en Garðabæjarfundurinn var 42. viðkomustaður hringferðar Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn var haldinn í sal Sjálfstæðisfélags Garðbæinga og í sal Klifsins, skapandi fræðsluseturs, en sá salur er við hliðina á sal Sjálfstæðisfélagsins. Skemmst er frá því að segja að fullt var út úr dyrum í báðum sölum.

Eins og á öðrum fundum hringferðarinnar fór umræðan um víðan völl. Heilbrigðismál, stjórnarsamstarfið, samgöngumál og málefni ferðaþjónustu voru til umræðu á borðum með þingmönnunum en ekki síður staða ríkisfjármála í ljósi nýrrar fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar sem Bjarni Benediktsson kynnti í gær.

Garðabær var 42. viðkomustaður þingflokksins í hringferðinni sem hófst með fundi á Laugarbakka í Húnaþingi vestra laugardaginn 10. febrúar sl.  Alls mun þingflokkurinn sækja heim rúmlega 50 staði á landinu, ýmist á opnum fundum eða með vinnustaðaheimsóknum.

Við þökkum Garðbæingum kærlega fyrir komuna í dag.

Heimsókn Þingflokksins í Garðabæ

Næstkomandi sunnudag, 24.mars mun þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafa viðkomu í félagsheimilinu að Garðatorgi, en þingflokkurinn hefur undanfarnar vikur verið á hringferð um landið til fundar við félaga og kjósendur alla. Fundurinn með þingflokknum hefst kl. 11:00 og við hvetjum alla til að koma við í félagsheimilinu og nýta tækifærið til hitta og ræða við þingmenn okkar.

Þriðjudagsfundur 26.febrúar

Meira og betra er líka dýrara

Garðbæingar eru ánægðastir allra með þjónustu við barnafjölskyldur í bæjarfélaginu samkvæmt nýjustu þjónustumælingu Gallup. Garðabær skorar þar hæst í sex af þrettán þáttum í samanburði við önnur sveitarfélög, m.a. í þjónustu leikskóla, grunnskóla sem og í heildarþjónustu við íbúa.

Samanburður við önnur sveitarfélög sýnir okkur líka að leikskólagjöld eru hæst í Garðabæ. Á Íslandi er heildarkostnaður við eitt barn á leikskóla að meðaltali rúmar tvær milljónir króna á ári. Foreldrar greiða undir 20% af þeim kostnaði, misjafnt á milli sveitarfélaga.

Nýlega var því slegið upp að foreldrar í Garðabæ greiddu tæpum 150.000 krónum meira á ári í leikskólagjöld en foreldrar í Reykjavík þar sem leikskólagjöldin eru ódýrust. Það er alveg rétt en setjum málið í stærra samhengi.

Það kostar foreldra hátt í eina milljón kr. á ári að vera með barn hjá dagforeldri. Reyndar er það mun ódýrara í Garðabæ þar sem niðurgreiðsla sveitarfélagsins er mun hærri en víðast hvar annars staðar. Foreldrar í Garðabæ greiða því sambærilegt gjald fyrir barn sitt í vist hjá dagforeldri og í leikskóla en með því verða dagforeldrar raunverulegur valkostur. Að öllu jöfnu komast börn 12 mánaða gömul inn í leikskóla í Garðabæ á meðan þau komast um ári seinna inn í leikskóla þar sem gjöldin eru ódýrust. Foreldrar í Reykjavík, sem þurfa vistun fyrir börn sín og nýta sér þjónustu dagforeldra, greiða því hátt í eina milljón kr. fyrir vist hjá dagforeldum árið sem barnið kemst ekki inn í leikskóla. Á sama tíma greiða foreldrar í Garðabæ um 400.000 kr. í leikskólagjöld fyrir árið auk þess sem Garðabær greiðir sinn hlut af kostnaðinum sem er um ein og hálf milljón ár ári.  Höfum einnig í huga að Garðabær er í hópi þeirra sveitarfélaga sem innheimta hlutfallslega lægstu skattana af meðaltekjum íbúa sinna á sama tíma og Reykjavík er í hópi þeirra sem taka hlutfallslega mest til sín.

Gerum betur

Börn í Garðabæ komast að öllu jöfnu inn í leikskólana 12 mánaða gömul og unnið er að því að hafa innritun tvisvar sinnum á ári. Dagforeldrar verða áfram valkostur með niðurgreiðslum sem tryggja að þeir eru raunverulegur valkostur af því að í Garðabæ borga foreldrar jafn mikið til dagforeldra og leikskóla. Stutt er við starfsfólk leikskólanna t.d. með þróunarsjóði sem styrkir innra starf skólanna. Sumaropnanirnar tryggja svo að fjölskyldur velja sjálfar hvenær þeim hentar að fara í sumarfrí.

Leikskólarnir eru samfélagi okkar mikilvægir og þá þurfum við að efla og styrkja. Við eigum að gefa í frekar en að draga úr. Eitt er víst: lægri leikskólagjöld munu á endanum alltaf lenda á skólunum sjálfum og bitna þar með á gæðum starfsins, starfsfólki og þar með leikskólabörnunum sjálfum og fjölskyldum þeirra.

Það er lítið mál að bjóða upp á ódýrari þjónustu ef þjónustan er lítil og minni en það sem borið er saman við. Í Garðabæ munum við kappkosta við það að veita íbúum í Garðabæ áfram góða þjónustu.

Höfundur er formaður bæjarráðs Garðabæjar.

Skemmtilegur fundur um menntamál

Síðastliðinn laugardag kom Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til okkar og ræddi um menntamálin. Hún hefur lagt fram frumvörp sem snúa að því að gera iðnnámi hærra undir höfði og opna háskólana fyrir fjölbreyttari hópum fólks.

Áslaug sagði okkur einnig frá nýju hlaðvarpi sem hún og Óli Björn Kárason hafa sett af stað þar sem þau fjalla um hin ýmsu þjóðfélagsmál á opinskáan og gagnrýninn hátt. Hlaðvarpið má finna á flestum hlaðvarpsveitum og hér: http://aslaugogolibjorn.libsyn.com/website

Myndir frá fundinum má sjá hér, á Facebook síðu félagsins:

Góður fundur um kjaramál

Við þökkum fyrir góðan fund um kjaramálin, en Halldór Benjamín Þorbergsson formaður Samtaka Atvinnulífsins var framsögumaður síðastliðinn Laugardag.

Við hlökkum til að sjá ykkur aftur Þriðjudaginn 22.Janúar, en á Þriðjudagsfundum þrengjum við fókusinn innan sveitarfélagsins og fáum gesti úr bæjarpólitíkinni. Á Þriðjudaginn mun Almar Guðmundsson bæjarfulltrúi og formaður fjölskylduráðs koma til okkar og fjalla um Húsnæðismálin. Fundurinn hefst kl. 18:30 og verða pizzur og gos á boðstólum.

Hér má sjá myndir frá laugardagsfundinum: