Ný stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar

Á aðalfundi Sjálfstæðisfélags Garðabæjar sem fram fór þann 3. júní s.l. var tillaga um skipun nýrrar stjórnar félagsins samþykkt einróma.

Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar 2026-2027 skipa:

Torfi Geir Símonarson, formaður
Agla Eir Vilhjálmsdóttir
Bjarni Th. Bjarnason
Egill Trausti Ómarsson
Eydís Sigurðardóttir
Eygló Rut Guðlaugsdóttir
Hanna Sigrún Sumarliðadóttir
Haukur Þorsteinsson
Jóhann Jónsson
Kristmundur Carter
Laufey Johansen
Soffía Haraldsdóttir
Sunna Sigurðardóttir
Vordís Eiríksdóttir

Stjórn mun skipta með sér verkum að öðru leyti á fyrsta stjórnarfundi. Þá voru þeir Eysteinn Haraldsson og Sigurður Guðmundsson kjörnir skoðunarmenn reikninga.

Að auki var gerð tillaga um að áfram starfi fulltrúi úr hópi bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins með stjórninni og tryggi þannig að samstarf á milli stjórnarinnar og kjörinna fulltrúa sé virkt og gagnlegt.

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar 2026

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar 2026 verður haldinn þann 3. júní n.k. kl. 17:00.

Dagskrá:

  • Hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins
  • Önnur mál

Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar

Veruleg fylgisaukning og átta bæjarfulltrúar

Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ tryggði sér verulegt aukið fylgi í nýafstöðnum kosningum til sveitarstjórna. Flokkurinn hlaut tæp 58% atkvæða og 8 menn kjörna eða hreinan meirihluta í bæjarstjórn Garðabæjar. Um er að ræða fylgisaukningu sem nemur nær níu prósentustigum frá kosningunum árið 2022. Þá jókst kjörsókn verulega og var 74% en hún var aðeins 64% árið 2022.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins kjörtímabilið 2026-2030 eru eftirfarandi:
1. Almar Guðmundsson
2. Björg Fenger
3. Margrét Bjarnadóttir
4. Hrannar Bragi Eyjólfsson
5. Stella Stefánsdóttir
6. Birkir Guðlaugsson
7. Jón Þór Eggertsson
8. Anna R. Möller

Anna R. Möller

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2026.

Jón Þór Eggertsson

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2026.

Birkir Guðlaugsson

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2026.

Stella Stefánsdóttir

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2026.

Hrannar Bragi Eyjólfsson

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2022

Margrét Bjarnadóttir

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2022.

Björg Fenger

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2018, formaður bæjarráðs frá 2022
Fædd 13. ágúst 1978
Heimili: Skrúðás 9
Nafn maka: Jón Sigurðsson
Börn: Sigurður Jónsson (2002) Styrmir Jónsson (2006)
Netfang: bjorg.fenger@gardabaer.is

Ferilskrá

Námsferill

Lögfræðingur (Cand jur.) frá Háskóla Íslands 2005
Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands 1999

Starfsferill

Stjórn 1912 ehf. 2007 –
Sérfræðingur hjá Velferðarráðuneytinu 2010 – 2013
Lögfræðingur hjá Fjármáleftirlitinu 2005 – 2007

Félagsstörf

Fulltrúaráð Sólheima 2006 –
Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar 2013- 2014
Stjórn handknattleiksdeildar Gróttu 2009 – 2011
Ýmis nefndarstörf í tengslum við skóla- og íþróttastarf

Nefndastörf á vegum Garðabæjar

Formaður ÍTG 2014 –
Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 2014 –