Morgunverðarfundur 12.Jan: Komandi Kjarasamningar

Kæru félagar.

Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir góðar stundir á liðnum árum.

Fyrsti fundur ársins hjá Sjálfstæðisfélaginu í Garðabæ verður haldinn næsta laugardag, þann 12. janúar kl. 11-12. Þá tökum við fyrir mikilvægt viðfangsefni, komandi kjarasamninga.

Sérstakur gestur verður Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Boðið verður upp á rúnstykki og ljúffengt bakkelsi.

Við hlökkum til að taka á móti þér.
Bestu kveðjur, Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ.