Opnunar- og þakkarmóttaka

Opnunar- og þakkarmóttaka hjá Sjálfstæðisfélaginu í Garðabæ.

Sjálfstæðisfélag Garðabæjar vill þakka öllu því góða fólki sem ávallt er boðið og búið til að leggja sitt af mörkum fyrir félagið og býður í opnunar- og þakkarmóttöku í félagsheimilinu að Garðatorgi 7 fimmtudaginn, 25. október kl. 18.

Samhentur hópur sjálfstæðisfólks skóp glæsilegan sigur Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í sveitarstjórnarkosningunum sl. vor. Margir lögðu hönd á plóg með einum eða öðrum hætti og fyrir það erum við þakklát.

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir miklar endurbætur og breytingar á félagsheimili Sjálfstæðisfélags Garðabæjar. Af því tilefni langar okkur að bjóða þér í opnunar- og þakkarmóttöku í endurbættu félagsheimili og segja ,,TAKK” við okkar góða fólk.

Við hvetjum þig til að mæta, þiggja léttar veitingar og eiga samtal við annað sjálfstæðisfólk – baráttan fyrir næstu kosningar er hafin!

Við hlökkum til að taka á móti þér.

Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ

Ný Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar

DCIM100MEDIADJI_0262.JPG

Á aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins þann 21.júní sl. var ný stjórn kjörin.

Stjórn félagsins frá 2018-2019 skipa nú eftirfarandi aðilar:
Formaður:
Sigþrúður Ármann, Hraunhólum 23

Meðstjórnendur:
Eymundur Sveinn Einarsson, Sunnuflöt 12
Bryndís Kristjánsdóttir, Ægisgrund 13
Jóhann Jónsson, Hlíðarbyggð 51
Laufey Arnalds Johansen, Árakri 1

Varastjórn:
Eva Björg Torfadóttir, Lynghólum 2
Helga Ólafsdóttir, Lyngholti 9
Elísabet Maack Pétursdóttir, Móaflöt 37
Bjarni Th. Bjarnason, Strandvegi 1
Torfi Geir Símonarson, Lyngmóum 3

Skoðunarmenn:
Eysteinn Haraldsson, Bæjargili 37
Bjarndís Lárusdóttir, Garðaflöt 35

Kveðja frá oddvita

Kæri Sjálfstæðismaður!
Ég vil fyrir hönd frambjóðenda þakka þér kærlega fyrir stuðninginn, á meðan á kosningabaráttunni stóð og svo auðvitað í kjörklefanum. Með þinni hjálp unnum við einn stærsta sigur á landinu og hér í Garðabæ. Við erum stolt af okkar verkum. Við höfum gefið út okkar 100 fyrirheit sem við munum standa við og gott betur á kjörtímabilinu sem nú fer í hönd. Í raun er kosningabaráttan hafin fyrir kosningarnar 2022. Við hvetjum þig til að hafa samband við okkur með ábendingar um það sem betur má fara, við lítum á slíkar ábendingar sem verðmæti.
Með þessum orðum óskum við þér og fjölskyldu þinni gleðilegs sumars og farsældar um ókomna tíð. Enn og aftur, kærar þakkir fyrir þitt framlag.
Gunnar Einarsson, oddviti, bæjarfulltrúi og bæjarstjóri

Pólitík er forgangsröðun!

Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar:

Garðabær er fjölskylduvænt og samheldið samfélag þar sem gott er að búa. Það er engin tilviljun að um 90% bæjarbúa eru ánægðir með þjónustu í leik- og grunnskólum bæjarins. Slíkur árangur og ánægja íbúa verður til af því að við forgangsröðum og leggjum m.a. áherslu á góða skóla og öflugt íþrótta- og tómstundastarf.

Val og vilji bæjarbúa

Í Garðabæ höfum við unnið að því að íbúar hafi val um fjölbreytta og ólíka valkosti er varða þjónustu sveitarfélagsins. Við hlustum á hvað íbúar vilja, tökum þjónustukannanir alvarlega og fylgjum því eftir hvað íbúar vilja að gert sé. Garðabær er fyrsta sveitarfélagið sem setur sér stefnu í íbúalýðræði og á þessu kjörtímabili hafa verið haldnir 39 opnir íbúa-, samráðs- og kynningarfundir eða fundur á sex vikna fresti að meðaltali.

Uppbygging og sterk fjárhagsstaða

Loforð og samráð eru til lítils ef fjárhagsstaðan er ekki í lagi. Góð þjónusta og uppbygging byggist á grunni sterkrar fjárhagsstöðu. Góð afkoma bæjarsjóðs og lækkandi skuldir gera okkur kleift að lækka álögur enn frekar. Í Garðabæ er uppbygging mikil, verið er að reisa búsetukjarna fyrir eldri borgara og fatlaða einstaklinga ásamt því að búið er að skipuleggja hverfi fyrir ungt fólk. Garðabær er eftirsóttur ekki aðeins vegna góðrar þjónustu heldur einnig vegna einstakrar náttúru og við höfum nú þegar friðlýst 40% af bæjarlandinu.

Lífsgæði

Sveitarfélögin bera ábyrgð á mörgum af mikilvægustu hagsmunamálum landsmanna og hafa því veruleg áhrif á lífsgæði okkar allra. Í Garðabæ höfum við lagt góðan og sterkan grunn þannig að hér geti áfram vaxið öflugt, metnaðarfullt og samheldið samfélag. Samfélag þar sem allir fá að njóta sín. Stjórnmál snúast um forgangsröðun og traust. Það að vera samkvæmur sjálfum sér og standa við gefin fyrirheit. Það höfum við gert – og ætlum gera áfram.

Höfundur er formaður bæjarráðs Garðabæjar og skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ

Blómlegur miðbær – sterkt mannlíf

Uppbygging miðbæjar í Garðabæ; blómlegur miðbær – sterkt mannlíf

Aðlaðandi miðbær með þjónustu og verslun er mikilvægur hluti af bæjarbrag. Garðabær er þétt fjölskyldusamfélag þar sem bæjarbúar heilsast, spyrja frétta og láta sér annt hver um annan. Þetta er bæjarmenning sem við viljum standa vörð um og verður sífellt dýrmætari í hraða samfélagsins. Öflugur miðbær styður við sterkt mannlíf.

Áfram uppbygging á Garðatorgi

Mikil uppbygging hefur verið á Garðatorgi sem er sífellt að verða öflugra með bílakjallara, glæsilegum verslunum, margs konar þjónustu og fyrsta flokks veitingastöðum. Sterkur miðbær eykur möguleikana fyrir íbúa, það er stutt að skreppa eftir gjafavöru, hitta vini í hádeginu eða koma á fund yfir góðum kaffibolla. Frágangi við byggingaframkvæmdir Garðatorgs 6 er að ljúka þar sem nú eru komnar verslanir og nýr veitingastaður. Frekari uppbygging og fegrun á torginu er brýnt verkefni sem er fyrirhugað á þessu ári og þeim næstu. Ákveðið hefur verið að setja fjármunir í að bæta aðstöðuna á torginu svo sem göngugötuna, innitorg og merkingar.

Landsleikur sýndur á torginu

Fyrirhugað er að sýna fyrsta leik Íslands á heimsmeistaramóti karla í fótbolta á breiðtjaldi á Garðatorgi þann 16. júní þegar Ísland mætir Argentínu. Þannig er torgið vettvangur fyrir ýmsa atburði og bæjarhátíðir þar sem bæjarbúar hittast og eiga góðar stundir saman.

Miðbær til framtíðar

Mikilvægt er að horfa til framtíðar við mótun miðbæjar og ljóst er að ákveðnar breytingar eru framundan um leið og öðrum framkvæmdum lýkur. Þar má nefna að Arion banki er á förum af torginu og æskilegt er að í það húsnæði komi líflegur rekstur sem dregur að sér mannlíf. Tiltekt og þrif hafa staðið yfir á vordögum í bílakjallara. Snyrting og málningarvinna á bílaplani og torgi er hluti af vorverkunum auk þess sem bekkjum verður fjölgað og gróður settur á torgið. Höldum áfram að byggja upp öflugan miðbæ í samvinnu við rekstraraðila á torginu, miðbæ sem eykur lífsgæði og samheldni íbúa og er bænum til sóma.

 

Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og skipar 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ

 

Skipulag á Álftanesi – lágreist byggð með áherslu á sveit í borg

Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir skrifar:

Vilji meirihlutans í Garðabæ er að viðhalda sveitarfélaginu á Álftanesi sem sveit í borg með hóflegri uppbyggingu til að koma til móts við íbúa, bæði þeirra sem hérna búa en líka þeirra sem hingað vilja flytja. Við munum vinna endanlega tillögu í sátt og samvinnu við íbúana.

Á því kjörtímabili sem senn fer ljúka hefur undirrituð lagt ríka áherslu í skipulagsnefnd á að varðveita þessa miklu perlu sem við sem hérna búum þekkjum. Fyrir stuttu var haldinn íbúafundur þar sem tillaga um nýtt deiliskipulag var forkynnt sem þýðir að við erum að kalla eftir ábendingum íbúa hvað betur má fara. Það kallast íbúalýðræði sem við í meirihlutanum höfum lagt mikla áherslu á enda haldið 37 slíka fundi í tengslum við ýmis mál á þessu kjörtímabili. Deiliskipulagstillagan byggir á vinningstillögu frá síðasta ári sem hefur tekið þó nokkrum breytingum frá upphafi. Tillagan sem var kynnt kemur frá skipulagshönnuði sem við í skipulagsnefnd komum svo áfram til íbúa með opnum fundi til að kalla eftir ábendingum frá íbúum. Þetta er ákveðið skipulagsferli til að ná sameiginlegri og hagkvæmri lausn fyrir íbúa sveitarfélagsins.

Við erum ekki að tala um óskipulagt svæði. Fyrir liggur deiliskipulag sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 26. júní árið 2008 af bæjarfulltrúum Álftaneslistans (hægt er að skoðað tillöguna á http://www.álftanes.is/Files/Skra_0023357.pdf og samþykkt deiliskipulag á vefsjá Skipulagsstofnunar skipulag.is). Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn undanfarið kjörtímabil hafa lagt áherslu á varðveita gæði svæða með hóflegri uppbyggingu en á sama tíma hefur minnihlutinn sem nú býður fram undir merkjum Garðabæjarlistans lagt áherslu á þéttingu byggðar.

Byggðin á Álftanesi er sérstök, umhverfið hérna einstakt og það ber að viðhalda. Vonandi fáum við Sjálfstæðismenn tækifæri til að vinna áfram með íbúum að glæsilegri lágreistri byggð undir formerkjum sveit í borg og veitum þannig fólki ungum sem öldnum sem hérna vill búa tækifæri til þess án þess að skerða þá perlu sem fyrir er.

Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Skipulagsfræðingur og íbúi á Álftanesi

Skipar 16. sætið á lista Sjálfstæðisflokks Garðabæjar

Framsóknarflokkurinn talar Álftanes niður

Það hefur vakið athygli í kosningabaráttunni nú að Framsóknarflokkurinn og frambjóðendur hans hafa valið þá meginstefnu að tala íbúðarhverfið á Álftanesi niður.
Frambjóðendur flokksins halda því ítrekað fram að okrað sé á Álftnesingum með hærra gjaldi fyrir kalda vatnið en aðrir bæjarbúar greiða, sem er alrangt og að vatnsveitan á Álftanesi sé ónýt og íbúum á Álftanesi sé hætta búin af þeim sökum, sem líka er fjarri sanni. Enda fylgja hvorki rök né neinar staðfestar mælingar. Ráðist er á starfsfólk Garðabæjar og heilbrigðiseftirlitsins með brigslyrðum um að þau séu ekki að sinna skyldum sínum.
Veitur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, reka vatnsveituna á Álftanesi og gera það vel.
Viðtæk lekaleit fór fram á Álftanesi í fyrra og fundust nokkrir lekar sem gert var við. Vitað er að vatnsþrýstingur er víða lægri en æskilegt er og að þrýstifall frá aðveituæð bæjarins á þar vissa sök. Verið er að leita leiða til að leysa þessi mál, m.a. er sameiginlegur starfshópur Veitna, Garðabæjar og verkfræðistofunnar Eflu í gangi um þessar mundir. Fyrirhugað er að endurnýja vatnslagnir í Norðurtúni nú í ár og í Túngötu í framhaldi af því.
Ekkert af þessu réttlætir samt þá stefnu Framsóknarflokksins að ala á ótta meðal Álftnesinga eða að ráðast með gífuryrðum á starfsfólk bæjarins og heilbrigðiseftirlitsins.
 
Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi í Garðabæ,
skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
 
Björg Fenger, varabæjarfulltrúi í Garðabæ,
skipar 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Virk lýðræðisstefna í Garðabæ

Almar Guðmundsson & Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifa:

Garðabær var fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að setja sér lýðræðisstefnu árið 2010 og hefur á liðnum árum aukið mjög íbúasamráð meðal annars með opnum íbúafundum, rýnihópum og greiðum leiðum fyrir íbúa til að koma á framfæri ábendingum.


Tillaga um aukið íbúasamráð

Á bæjarstjórnarfundi 3. maí síðastliðinn lögðu undirrituð  fram tillögu um að Garðabær fylgi lýðræðisstefnu sinni eftir með því að setja sér vinnureglur um íbúasamráð sem miða að því að efla enn frekar lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu og leita nýrra leiða í samtali við íbúa. Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir næsta ár verði sett ákveðin fjárhæð í verkefni sem verða skilgreind nánar og unnin í samráði við íbúa svo sem með rafrænni íbúakosningu.

 

Hagsmunir íbúa

Grundvallarskylda sveitarstjórna er að taka ákvarðanir með hliðsjón af þörfum og hagsmunum íbúa og sveitarfélagsins í heild. Sterk tengsl við íbúa sem þekkja eigin nærumhverfi best skapar forsendur fyrir samráðsmenningu og farsælli ákvarðanatöku.

 

37 opnir íbúafundir

 Alls hafa 37 opnir íbúa-, samráðs- og kynningarfundir verið haldnir í Garðabæ á undanförnum fjórum árum. Þessir fundir snúa í flestum tilfellum að ákveðnum málefnum sem eru til umræðu og kynningar eða að ákveðnum hverfum bæjarins þar sem málefni sem snúa sérstaklega að viðkomandi svæði eru  til umræðu. Flestir opnir fundir hafa verið vegna skipulagsmála en einnig hafa verið haldnir opnir íbúafundir um skólamál, fjármál og fjárhagsáætlun, nágrannavörslu og öryggi íbúa, íþrótta og tómstundamál, menningarmál, umhvefismál og fleiri málefni.

 

Bæjarbúar rýna til gagns

Í  kjölfar könnunar á þjónustu bæjarfélagsins á yfirstandandi kjörtímabili var utanaðkomandi fagðili fenginn til að stýra rýnihópum með bæjarbúum í því skyni að fá fram hugmyndir til að efla þjónustuna enn frekar. Þessi nálgun hefur sannanlega skilað hugmyndum sem hefur verið hrint í framkvæmd, ábendingum sem tekið hefur verið tillit til og auðvitað ekki síst góðu og opnu samtali.

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ leggja ríka áherslur á að unnið sé með íbúasamráð með skýrum hætti við stjórnun og stjórnsýslu. Íbúar geta treyst því að áfram verður unnið i anda lýðræðisstefnu bæjarins m.a. þannig að rafrænar íbúakosningar um einstök verkefni verði viðhafðar.

Sigríður Hulda Jónsdóttir og Almar Guðmundsson. Höfundar eru bæjarfulltrúar og skipa sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.

Höldum vel um fólkið okkar

Gunnar Einarsson skrifar:

Á síðasta ári voru útgjöld Garðabæjar til fjölskyldusviðs 12,8% af heildarútgjöldum og er nú um að ræða annan stærsta útgjaldalið bæjarins en fjölskyldusvið fer með framkvæmd þeirra mála er lúta að félagslegri þjónustu bæjarins, barnavernd og jafnréttismálum. Stærsti útgjaldaliðurinn hjá Garðabæ fer til fræðslu- og uppeldismála eða um 53% en þriðji stærsti útgjaldaliðurinn á síðasta ári fór til æskulýðs- og íþróttamála (12,3%) Oft er hægt að greina áherslumál út frá stærstu útgjaldaliðum og í tilviki Garðabæjar eru þrír stærstu útgjaldaliðirnir allt mikilvægir þættir þegar kemur að því að halda samfélaginu okkar í forystu.

Stuðningur til sjálfshjálpar

Við viljum halda vel utan um allt fólkið okkar sem býr í bænum og styðja við einstaklinga sem þurfa á fjárhagsaðstoð að halda til virkni og sjálfshjálpar. Hverju og einu sveitarfélag setur sínar eigin reglur um fjárhagsaðstoð og eru upphæðir mjög mismunandi. Garðabær veitir fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Grunnfjárhæð til einstaklings er að hámarki 185 þúsund krónur á mánuði og er það hærri upphæð en  t.d. í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.  Á síðasta ári fengu 106 einstaklingar/fjölskyldur fjárhagsaðstoð í Garðabæ.

Nýjar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning  sem samþykktar voru fyrir áramót gefa þeim einstaklingum sem eiga rétt á almennum húsnæðisbótum ríkisins jafnframt rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi frá Garðabæ.

Félagslegt húsnæði – nýr búsetukjarni fyrir fatlað fólk

Garðabær á 29 félagslegar íbúðir, þar af var ein keypt síðasta haust og ein í vor. Um síðustu áramót voru 23 aðilar á biðlista eftir almennu félagslegu húsnæði. Umsækjendum er forgangsraðað á listann eftir aðstæðum svo að þeir sem eru í mestri neyð, fái fyrst aðstoð.

Kapp er lagt á að stytta biðtíma eins og kostur er. Í því samhengi má nefna að í Reykjavík þarf íbúi að hafa verið með skráð lögheimili í borginni í þrjú ár áður en hann getur sótt um félagslega íbúð. Í Garðabæ er þessi tími einungis eitt ár og þar með styttist biðtíminn töluvert.

Þrátt fyrir að Garðabær skori hátt þegar kemur að ánægju íbúa með þjónustu er alltaf hægt að gera betur. Síðustu ár hefur Garðabær boðið upp á notendastýrða persónulegra aðstoð (NPA) til reynslu til samræmis við framtíðarsýn í þjónustu við fatlað fólk. Nú eru sex slíkir samningar í gildi, verkefnið hefur gengið vel og þeir sem njóta þjónustunnar eru ánægðir með þessa breytingu.

Þá er nú í byggingu búsetukjarni fyrir fatlað fólk við Unnargrund í Garðabæ og er gert ráð fyrir að fyrstu íbúar flytji inn vorið 2019. Þannig mun á næsta kjörtímabili verða fjölgun á félagslegum búsetuúrræðum í Garðabæ. Mikilvægt er að stuðla að virkni fatlaðs fólks og þeirra sem þurfa á aðstoð að halda m.a. í fjölbreyttu íþrótta-, tómstunda- og félagsstarfi.  Áfram munum við leggja áherslu á að standa vörð um hagsmuni barna og ungmenna m.a. þannig að enginn þurfi að hverfa frá þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og að ungmenni sem hvorki eru í námi né vinnu hafi kost á sjálfseflandi úrræðum á vegum sveitarfélagsins s.s. Fjölsmiðjunni.

Mín ósk er sú að okkur öllum hér í Garðabæ líði vel og hægt sé eftir fremsta megni að koma til móts við mismunandi þarfir bæjarbúa. Við sjáum um okkar fólk og viljum að íbúar Garðabæjar geti verið stoltir af því að vera Garðbæingar.

Gunnar Einarsson, Bæjarstjóri Garðabæjar