Laugardagsfundur: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Á næsta Laugardagsfundi, þann 18. nóvember, kemur til okkar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Áslaug Arna hefur helgað lífi sínu stjórnmálunum öll sín fullorðinsár og verið, þrátt fyrir ungan aldur, Alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðan 2016. Hún hefur svo sannarlega verið áberandi og öflugur stjórnmálamaður. Áslaug Arna segir okkur helstu verkefnum í ráðuneytinu um þessar mundir og svarar ykkar spurningum.
Fundurinn hefst að venju kl. 11:00. Heitt verður á könnunni og ilmandi veitingar frá Gulla Arnari bakara í boði.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest!

Aðhald til varnar sterkri stöðu

Við ætlum að halda áfram að veita toppþjónustu í Garðabæ og við höfum skýr markmið að vera besti staðurinn til að búa á, nú sem endranær. Við viljum vera samfélag sem veitir framúrskarandi þjónustu til ánægðra íbúa.
Garðabær stendur vel fjárhagslega. Skuldaviðmið er lágt og vel undir opinberum viðmiðunarmörkum, en hefur hækkað samhliða vexti bæjarins undanfarin ár. Þrátt fyrir það er ljóst að langvinn óvissa í efnahagsmálum hefur haft mikil áhrif á rekstur Garðabæjar eins og annarra sveitarfélaga.

Áfram toppþjónusta í Garðabæ

Það er því áskorun okkar sem erum í framvarðasveit starfsfólks bæjarins að standa undir þessu þjónustuloforði. Það ætlum við að gera þrátt fyrir að síðustu ár hafi fjármögnun þessara góðu verka verið stöðugt erfiðari. Við höfum séð vexti, verðbólgu og laun hækka umtalsvert.
Kröfur til bæjarins hafa aukist samfara gleðilegum og markvissum vexti bæjarins með mikilli fjölgun barnafjölskyldna í bænum.

Við höfum því sett í forgrunn að vernda þjónustuna og okkar þjónustuloforð. Um leið stöndum við vörð um ábyrgan rekstur og sterka stöðu bæjarins.

Við þurfum að bregðast við og leggjum áherslu á aðgerðir til að styrkja grunnrekstur bæjarins. Annars vegar með hagræðingu í rekstri og hins vegar með hærra álagningarhlutfalli útsvars.
Hvað þýðir það? Jú, bæjarstjórn hefur nú kynnt hagræðingaraðgerðir sem nema um 500 m.kr. á ársgrundvelli eða um 2% af rekstrar útgjöldum bæjarins ásamt því að hækka útsvarshlutfall. Með þessu teljum við að við séum að skapa traustar undirstöður fyrir áframhaldandi sterkra stöðu bæjarins á öllum sviðum.
Þess vegna förum við varlega af stað. Við hækkum útsvar hóflega samhliða því að við horfum á rekstur bæjarins og hagræðum. Einnig drögum við úr framkvæmdum.

Íbúar í forgrunni

Það gerist auðvitað ekki oft að við í Garðabæ hækkum skatta. Við metum þó stöðuna núna þannig að þetta sé nauðsynlegt skref og að þetta sé rétti tíminn.

En ef skuldaviðmið er lágt og reksturinn stendur vel, hvers vegna erum við þá að grípa inn í?
Jú, því við viljum búa í haginn fyrir framtíðina og standa vörð um trausta fjárhagsstöðu bæjarins. Í því samhengi vil ég árétta að enn eru stór mál óútkljáð milli ríkis og sveitarfélaga, þar með Garðabæjar, um fjármögnun mikilvægra verkefna.

Þó Garðabær standi vel þá er það skylda okkar að laga reksturinn að breyttum forsendum og þeim efnahagsaðstæðum sem blasa við. Það höfum við áður gert með góðum árangri, og staðið þannig vörð um hátt þjónustustig og lífsgæði fyrir íbúa í bænum.

Með þessu getum við staðið vörð um þjónustuna okkar. Við erum framúrskarandi á því sviði og ætlum að vera það áfram. Áherslan er áfram á mikilvæga innviðauppbyggingu og endurbætur á skólahúsnæði.
Við vitum líka að þetta eru tímabundnar aðstæður en við þeim þarf samt að bregðast. Álögur eru enn lágar í Garðabæ, lægstar af stærstu sveitarfélögunum og þó víðar væri leitað. Með framlagðri fjárhagsáætlun erum við að sýna ábyrgð í rekstri en erum samt enn að sækja fram með grandvörum og traustum hætti.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og oddviti Sjálfstæðisflokksins.

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 10.nóvember 2023.

Bæjarmálafundur: Bætt starfsumhverfi leikskóla

Kynning stendur nú yfir á breytingum á starfsumhverfi leikskóla í Garðabæ. Breytingarnar, sem verða endanlega staðfestar á fundi bæjarstjórnar þann 16. nóvember n.k., taka til ýmissa þátta í umhverfi leikskóla bæjarins og hafa áhrif á börn, foreldra og starfsfólk.
Á bæjarmálafundi þann 15. nóvember kemur til okkar Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi og formaður leikskólanefndar Garðabæjar ásamt Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra. Margrét ætlar að fara yfir breytingarnar og segja okkur frá stöðu leikskólanna í bænum og svara spurningum ásamt Almari.
Húsið opnar kl. 17:30 en fundurinn hefst kl. 18:00.
Pizzur og drykkir á boðstólum, litabækur og litir fyrir krakkana. Frábært að stoppa við á leiðinni heim og ræða bæjarmálin.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

Dagur uppskeru, gleði og stolts – Fjölmennur menntadagur í Garðabæ

Það var einstaklega ánægjulegt að ávarpa og halda utan um Menntadag Garðabæjar s.l. föstudag þar sem ríflega 450 starfsmenn leikskóla, grunnskóla og frístundar í Garðabæ komu saman í Álftanesskóla. Menntadagurinn var nú haldinn í sjötta skiptið og er  orðinn árviss viðburður í skólastarfi bæjarins. Menntadagur er afrakstur Þróunarsjóða leik- og grunnskóla Garðabæjar þar sem okkar góða skólafólk hittist, þróunarverkefni eru kynnt og hlýtt á önnur erindi.

Valdefling, farsæld og tilfinningalegt öryggi barna

Nýbreytni á Menntadeginu að þessu sinni var að hefja daginn á þremur erindum í hátíðarsal Álftanesskóla og síðan skiptist hópurinn upp á smærri kynningar þróunarverkefna. Opnunar erindin héldu þær Oddný Sturludóttir og Bergdís Wilson, auk þess sem Kolbrún Þorkelsdóttir, verkefnastjóri Farsældar í Garðabæ var með stutt erindi. Oddný er aðjúnkt við Háskóla Íslands og sérfræðingur í þverfaglegu samstarfi, tómstundafræðum og menntastjórnun, erindi hennar fjallaði um valdeflingu barna. Bergdís hefur starfað í verkefnum tengdum farsæld barna í Skotlandi í 14 ár og fjallaði erindi hennar um mikilvægi þess að börn finni fyrir kærleika og tilfinningalegu öryggi allstaðar í umhverfi sínu.

Þróunarverkefni kynnt; 17 fjölbeyttar málstofur

Að fræðsluerindunum loknum gat starfsfólk valið úr sautján málstofum þar sem fjallað var um verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóðum leik- og grunnskóla Garðabæjar. Markmið þróunarsjóðanna er að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi skóla í Garðabæ. Einstaka kennarar, kennarahópar og aðrir fagaðilar sem starfa við grunnskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu sem og fræðslu- og menningarsvið bæjarins í  samstarfi við skóla geta sótt um styrk í þróunarsjóðina. Úthlutun úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla er einu sinni á ári og fjölbreytt verkefni hafa fengið styrki úr sjóðunum á liðnum árum eða allt frá árinu 2017 þegar sjóðirnir voru stofnaðir. Á málstofunum var því margt í boði en þar var meðal annars hægt var að fræðast um legó í grunnskólastarfi, lestrarverkefni, heimanámsverkefni, hvernig halda má góða stofufundi, hvernig má efla börn til að vera tæknistjórar skólanna og svo mætti lengi telja.

Skólastarf leggur grunn að velferð barna í samfélaginu

Ég  er gríðarlega  stolt af metnaðarfullu starfi leik- og grunnkólanna í Garðabæ. Það er mikilvægt fyrir kennara og aðra starfsmenn skólanna að fá tækifæri til að kynna þróunarverkefni sín, hlýða á fagleg erindi, hittast og deila hugmyndum og leiðum í kennsluaðferðum og nýjungum í skólastarfi. Svona dagur er dagur uppskeru, gleði og stolts. Allir vita hve mikilvægt það  er  að börnin fái góða og fjölþætta menntun  og ekki síður að þeim líði vel í skólanum. Þróunarsjóðir leik- og grunnskóla í  Garðabæ hafa undanfarin ár styrkt mörg fjölbreytt verkefni og það er einkar ánægjulegt að upplifa hvernig þessi verkefni efla skólastarfið. Við erum með flotta skóla í bænum og starfsfólk þeirra er framsækið.  Kennarar og skólafólkið okkar má virkilega vera stolt af mikilvægu störfum sínum sem leggja grunninn  að velferð barna í samfélaginu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar og formaður skólanefndar Garðabæjar.

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 2.nóvember 2023.

Bæjarmálafundur XD Garðabæ: Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024

Á bæjarmálafundi þann 7. nóvember kemur til okkar Almar Guðmundsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Almar ætlar að fara yfir yfirstandandi vinnu við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 og þau verkefni sem fram undan eru í fjármálum bæjarins.
Húsið opnar kl. 17:30 en fundurinn hefst kl. 18:00.
Pizzur og drykkir á boðstólum, litabækur og litir fyrir krakkana. Frábært að stoppa við á leiðinni heim og ræða bæjarmálin.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

Laugardagsfundur: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Í vetur ætlar Sjálfstæðisfélag Garðabæjar að bjóða upp á bæði þriðjudags- og laugardagsfundi. Á þriðjudögum bjóðum við upp á bæjarmálafundi þar sem meginefni fundanna tengist bæjarmálum hér í Garðabænum. Á laugardögum eru það svo landsmálin.
Á Laugardagsfundi þann 21.október kemur til okkar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins sem tók um liðna helgi við sem fjármála- og efnahagsráðherra.
Þórdís Kolbrún hefur verið ráðherra utanríkismála síðustu tvö ár á vægast sagt róstursömum tímum í alþjóðamálum. Hún segir okkur frá tímanum í ráðuneytinu og svarar spurningum um hann sem og þau verkefni sem eru fram undan nú þegar hún hefur tekið við nýju ráðuneyti.
Fundurinn hefst kl. 11:00 að venju. Heitt á könnunni og ilmandi veitingar frá Gulla Arnari bakara.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

Virkjum það besta í okkur sjálfum – skráning á námskeið

Sjálfstæðisfélag Garðabæjar býður konum í félaginu á námskeið með Sigríði Indriðadóttur, fyrrum formanni félagsins.

Sigga okkar er mannauðsfræðingur, stjórnendaþjálfari og framkvæmdastjóri Saga Competence. Hún hefur víðtæka reynslu og hefur starfað sem mannauðsstjóri stórra fyrirtækja, Dale Carnegie þjálfari og fyrirlesari.

Skráning á námskeiðið fer fram hér.

Allt um námskeiðið hér fyrir neðan:

Góð samskipti skapa gott samfélag

Forvarnavika Garðabæjar verður haldin í áttunda sinn dagana 4.-11. október 2023. Markmið forvarnavikunnar er að vekja athygli á mikilvægum og fjölbreyttum þáttum í forvarnarstarfi. Garðabær vill með forvarnavikunni styrkja og efla forvarnir í bænum, auka fræðslu, þekkingu og vitund Garðbæinga um lýðheilsu, samfélagið og nauðsynlegar forvarnir á ýmsum sviðum. Með víðtækri þátttöku í forvarnavikunni nýtum við þau sóknarfæri að gera vel í forvarnarmálum og stuðlum að heilbrigði Garðbæinga á öllum aldri á markvissan hátt.

Víðtæk samvinna samfélagsins

Forvarnavikan er verkefni sem hófst í grunnskólum bæjarins árið 2016. Verkefnið hefur vaxið að umfangi með ári hverju en strax á öðru ári bættust leikskólarnir við. Í kjölfarið fylgdu ýmsar stofnanir og félög í bænum og fyrir nokkrum árum var sérstaklega leitað til eldri borgara og ungmennaráðs í því skyni að sem flestar raddir heyrðust í forvarnavikunni.

Það er að mínu áliti afskaplega mikilvægt að samfélagið allt komi að forvarnarmálum enda varða forvarnir bæjarbúa alla og verða þeim mun áhrifameiri ef allt samfélagið tekur höndum saman og vinnur að þeim sem ein heild. Höfum það hugfast, að þó forvarnavikan sé árlegt átaksverkefni, sem sett er af stað í því skyni að vekja vitund og efla fræðslu, að þá eru forvarnir viðfangsefni allra á hverjum einasta degi allt árið um kring.

Samskipti – góð samskipti – gott samfélag

Þema forvarnavikunnar í ár eru samskipti. Í vikunni ætlum við að skoða samskiptin okkar með fjölskyldum, skólum og íþróttafélögum. Við ætlum að velta fyrir okkur og reyna að svara því hvernig við tökumst á við ágreining, hvernig við eigum í jákvæðum samskiptum og hvernig við sköpum gott samfélag. Við berum öll ábyrgð á að eiga í góðum samskiptum, bæði ég og þú, sama hvaða hlutverki við gegnum, sem foreldrar, þjálfarar, iðkendur, kennarar, nemendur og manneskjur í samfélaginu okkar. Þema forvarnavikunnar árið 2023 er valið í þeirri trú að með góðum og jákvæðum samskiptum sem byggð eru á umburðarlyndi sköpum við gott samfélag þar sem einstaklingar vaxa og dafna á hverjum degi.

Í leikskólum bæjarins verður fjallað um samskipti barna við fullorðna. Í grunnskólunum verður kennsluefni frá KVAN nýtt til að þjálfa nemendur og starfsfólk í bættum samskiptum, en fjallað verður um hvernig tekist er á við ágreining, hvernig hægt er að eiga jákvæð samskipti og byggja upp gott skólasamfélag. Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar beinir því til íþróttafélaga og annarra frjálsra félaga í bænum að leggja áherslu á að bæta samskipti til að bæta líðan einstaklinga sem koma að starfinu, bæði þjálfara og iðkenda.

Tökum þátt – vinnum saman að heilbrigðu samfélagi!

Fyrir hönd íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar vil ég hvetja alla bæjarbúa til að vinna saman að heilbrigðu samfélagi. Hugum sérstaklega að daglegum samskiptum í lífi okkar, sköpum traust manna í millum og treystum þannig forvarnir í lífi barnanna okkar. Dagskrá forvarnaviku Garðabæjar má finna á vef bæjarins, gardabaer.is, og einnig má sjá upplýsingar á vefjum skólanna. Ég vil þakka sérstaklega þeim fjölmörgu aðilum sem hafa lagt sig fram við að undirbúa áhugaverða, fræðandi og skemmtilega dagskrá fyrir forvarnavikuna okkar árið 2023.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum 4.október 2023

Bæjarmálafundur xD Garðabæ – Fjölskyldumálin

Á næsta bæjarmálafundi verða fjölskyldumálin í Garðabæ tekin fyrir.
Gunnar Valur Gíslason formaður fjölskylduráðs og Harpa Rós Gísladóttir formaður öldungaráðs bjóða okkur til samtals, fara yfir það sem er í deiglunni um þessar mundir og svara spurningum.
Bæjarmálafundir eru kjörinn vettvangur til að afla sér upplýsinga, koma skoðunum sínum og vangaveltum á framfæri, eiga samtal og síðast en ekki síst hitta aðra bæjarbúa.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar heldur fundina og býður upp á pizzur, drykki og afþreyingu fyrir börn. Það er því tilvalið að koma við á heimleiðinni og slá tvær flugur í einu höggi.
Bæjarfundirnir eru haldnir í félagsheimili okkar, Garðatorgi 4. Húsið verður opnað kl.17:30 og fundurinn hefst kl.18:00.
Við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Öll hjartanlega velkomin.