Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom til fundar við Garðbæinga í morgun, en Garðabæjarfundurinn var 42. viðkomustaður hringferðar Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn var haldinn í sal Sjálfstæðisfélags Garðbæinga og í sal Klifsins, skapandi fræðsluseturs, en sá salur er við hliðina á sal Sjálfstæðisfélagsins. Skemmst er frá því að segja að fullt var út úr dyrum í báðum sölum.

Eins og á öðrum fundum hringferðarinnar fór umræðan um víðan völl. Heilbrigðismál, stjórnarsamstarfið, samgöngumál og málefni ferðaþjónustu voru til umræðu á borðum með þingmönnunum en ekki síður staða ríkisfjármála í ljósi nýrrar fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar sem Bjarni Benediktsson kynnti í gær.

Garðabær var 42. viðkomustaður þingflokksins í hringferðinni sem hófst með fundi á Laugarbakka í Húnaþingi vestra laugardaginn 10. febrúar sl.  Alls mun þingflokkurinn sækja heim rúmlega 50 staði á landinu, ýmist á opnum fundum eða með vinnustaðaheimsóknum.

Við þökkum Garðbæingum kærlega fyrir komuna í dag.