Salur Sjálfstæðisfélagsins

Nýlega fóru fram endurbætur á eldhúsi í félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins að Garðatorgi en þar var fyrir upprunaleg innrétting frá byggingu hússins. Eldhúsið er nú nútímalegra og býður upp á betri vinnuaðstöðu en áður.

Salur Sjálfstæðisfélagsins verður hér eftir leigður út fyrir fundi og minni veislur, t.d. skírnir eða fermingar. Í salnum er góð aðstaða sem hentar vel fyrir 30-50 manna veislur.

Í salnum eru stólar og borð fyrir um 60 manns, þrjú háborð (sveppaborð) og stór skjár til að sýna myndefni.

Salurinn verður eingöngu leigður út fyrir dagveislur og fundi á tímabilinu 08:00-21:00 og engin starfsemi er leyfileg á kvöldin þar sem félagið vill ekki valda nágrönnum ónæði.

Nánari upplýsingar og bókanir á salnum fara fram í gegnum tölvupóst á gardar@xd.is

S-in fimm – Samkennd, seigla, sjálfstjórn, sjálfstæði og skapandi hugsun – Forvarnavika Garðabæjar 1.-8. nóvember 2024

Forvarnavika Garðabæjar verður haldin í níunda sinn dagana 1.-8. nóvember 2024. Vikan hefst á Menntadegi Garðabæjar og lýkur á Degi gegn einelti.

Markmið forvarnavikunnar er að vekja athygli á mikilvægum og fjölbreyttum þáttum í forvarnarstarfi. Garðabær vill með forvarnavikunni styrkja og efla forvarnir í bænum, auka fræðslu, þekkingu og vitund Garðbæinga um lýðheilsu, samfélagið og nauðsynlegar forvarnir á ýmsum sviðum. Með víðtækri þátttöku í forvarnavikunni nýtum við þau sóknarfæri að gera vel í forvarnarmálum og stuðlum að heilbrigði Garðbæinga á öllum aldri á markvissan hátt.

Víðtæk samvinna samfélagsins

Forvarnavikan er verkefni sem hófst í grunnskólum bæjarins árið 2016. Verkefnið hefur vaxið að umfangi með ári hverju en strax á öðru ári bættust leikskólarnir við. Í kjölfarið fylgdu ýmsar stofnanir og félög í bænum og fyrir nokkrum árum var sérstaklega leitað til eldri borgara og ungmennaráðs í því skyni að sem flestar raddir heyrðust í forvarnavikunni.

Það er að mínu áliti afskaplega mikilvægt að samfélagið allt komi að forvarnarmálum enda varða forvarnir bæjarbúa alla og verða þeim mun áhrifameiri ef allt samfélagið tekur höndum saman og vinnur að þeim sem ein heild. Höfum það hugfast að þó forvarnavikan sé árlegt átaksverkefni, sem sett er af stað í því skyni að vekja vitund og efla fræðslu, að þá eru forvarnir viðfangsefni allra á hverjum einasta degi allt árið um kring.

Góð samskipti skapa gott samfélag

Þema forvarnavikunnar í ár eru samskipti og S-in fimm sem lögð eru fram í nýjum Samskiptasáttmála Garðabæjar. S-in fimm eru samkennd, seigla, sjálfstjórn, sjálfstæði og skapandi hugsun.
Í vikunni ætlum við að skoða samskiptin okkar með fjölskyldum, skólum og íþróttafélögum með sérstaklega áherslu á S-in fimm. Við munum skoða hugtökin frá ýmsum sjónarhornum með það að markmiði að bæta og stuðla að jákvæðum samskiptum í samfélaginu okkar. Við berum öll ábyrgð á að eiga í góðum samskiptum, bæði ég og þú, sama hvaða hlutverki við gegnum, sem foreldrar, þjálfarar, iðkendur, kennarar, nemendur og manneskjur í samfélaginu okkar.

Í leikskólum bæjarins mun hver leikskóli vinna með S-in fimm og fjalla sérstaklega um hugtökin í starfi sínu þá vikuna. Í grunnskólunum verður fjölbreytt dagskrá og munu félagsmiðstöðvarnar leggja áherslu á að kynna forráðafólki fyrir starfsemi þeirra og vinna sérstaklega með S-in fimm með það að augnamiði að treysta tengsl forráðamanna, barna og starfsmanna félagsmiðstöðvanna.

Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ hefur verið ákveðið að halda forvarnarmánuð í nóvember og verður fjölbreytt dagskrá með námskeiðum, smiðjum og alls kyns viðburðum sem hafa það að markmiði að efla félagsfærni, samkennd og samskipti meðal nemenda. Þar að auki er sefnt að því að draga úr símanotkun, auka samfélagslega ábyrgð og stuðla að betri andlegri heilsu meðal nemenda með því að hvetja til betri samskipta og aukinnar samveru.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar beinir því til íþróttafélaga og annarra frjálsra félaga í bænum að leggja áherslu á að bæta samskipti til að bæta líðan einstaklinga sem koma að starfinu, bæði þjálfara og iðkenda.

Opinn fundur með forráðafólki barna og ungmenna

Garðabær mun síðan halda opinn fund með forráðafólki barna- og ungmenna í Garðabæ þriðjudaginn 12. nóvember nk., kl. 20:00 í Sjálandsskóla. Bæjarstjóri mun ávarpa fundinn en svo munu fyrirlesarar flytja nokkur erindi um málefni sem snúa að börnum og ungmennum í bænum okkar í ljósi umræðna og atburði sem hafa átt sér stað í samfélaginu undanfarin misseri, s.s. um vopnaburð ungmenna, hópamyndanir, hættur á samfélagsmiðlum o.s.frv. Við hvetjum foreldra og forráðafólk til að fjölmenna á opna fundinn og taka þátt í gagnlegum umræðum um forvarnir í lífi barna og ungmenna í Garðabæ.

Tökum þátt – vinnum saman að heilbrigðu samfélagi!

Fyrir hönd íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar vil ég hvetja alla bæjarbúa til að vinna saman að heilbrigðu samfélagi. Hugum sérstaklega að daglegum samskiptum í lífi okkar, sköpum traust manna í millum og treystum þannig forvarnir í lífi barnanna okkar. Dagskrá forvarnaviku Garðabæjar má finna á vef bæjarins, gardabaer.is, og einnig má sjá upplýsingar á vefjum skólanna. Ég vil þakka sérstaklega þeim fjölmörgu aðilum sem hafa lagt sig fram við að undirbúa áhugaverða, fræðandi og skemmtilega dagskrá fyrir forvarnavikuna okkar árið 2024.

Hrannar Bragi Eyjólfsson
formaður íþrótta- og tómstundaráðs

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 31. október 2024

Fullt út úr dyrum á Laugardagsfundi og stjórnarslit

Laugardagsfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar þann 12. október s.l. var sögulegur að mörgu leyti.

Aldrei áður hefur viðlíka fjöldi verið saman kominn í Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi 7. Bæta þurfti við stólum frá nágrönnum og fjöldinn allur stóð. Gestur fundarins var Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, en mikil umræða hafði verið í stjórnmálunum vikurnar fyrir fundinn um stöðu ríkisstjórnarsamstarfsins. Á fundinn voru líka mættir aðrir ráðherrar og þingmenn til að hlýða á formanninn.

Á fundinum var Bjarni skýr. Minnsti flokkur samstarfsins gæti ekki einn staðið í vegi fyrir málum sem samið var um í stjórnarsáttmála og nauðsynlegt væri að vinna að. Þannig væri ljóst að ef breyting yrði ekki á afstöðu samstarfsflokksins væri lítið eftir nema að slíta stjórnarsamstarfinu og boða til snemmbúinna kosninga.

Rúmum sólarhring eftir fundinn boðaði Bjarni svo blaðamannafund þar sem ljóst varð að Sjálfstæðisflokkurinn hyggðist ekki starfa áfram í ríkisstjórn að svo búnu. Framvinda málsins er enn óljós en á næstu dögum mun skýrast hvenær vænta má kosninga. Það er ljóst að fram undan er snörp kosningabarátta.

 

Viðburðir fram undan

Á næstu misserum eru fjölmargir viðburðir á dagskrá Sjálfstæðisfélagsins. Við hvetjum alla áhugasama að taka tímann frá!

  • 28. September kl. 11:00: Bæjarmálafundur með bæjarstjóra og bæjarfulltrúu
  • 12. Október kl. 11:00: Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins
  • 23. Október kl. 18:00: Áslaug Arna og Óli Björn ræða hægri pólitíkina.
  • 16. Nóvember kl. 11:00: Vilhjálmur Árnason, ritari Sjálfstæðisflokksins
  • 30. Nóvember: Jólasúkkulaði Sjálfstæðisfélagsins

Bein leið, liggur gatan greið?

Leið mín á bæjarskrifstofuna er alla jafna nokkuð greið, enda örstutt.

En þrátt fyrir það þekki ég, líkt og aðrir íbúar höfuðborgarsvæðisins, umferðatafir – eða teppu- vel. „Teppan“ fer líklegast að ná hápunkti sínum á næstu dögum nú þegar skólar eru byrjaðir og sumarfrí klárast.
Umferðin er augljóslega hluti af lífinu, en í mínum huga er það valfrelsismál – og lýðheilsumál-að geta valið sér ferðamáta. Hvort sem fólk vill ferðast akandi, gangandi, hjólandi eða með almenningssamgöngum eiga það að vera þeim raunhæfir valkostir.

Hér í Garðabæ höfum við verið nokkuð sjálfbær í því að útbúa greiðfæra göngu og hjólastíga, enda vitum við að gerir fólki kleift að hreyfa sig eftir eigin hentisemi. Innviðaskuldin varðandi bílaumferðina var hins vegar orðin yfirgengileg, enda ekki á okkar færi að laga hana einsömul.

Það var því jákvætt skref þegar Samgöngusáttmálinn varð að veruleika árið 2019. Því miður fór framkvæmd hans ekki nægilega vel af stað og ýmis þeirra verkefna sem um var samið voru ekki nægilega þroskuð og hingað til höfum við séð of lítinn ávinning og mun meiri kostnað en lagt var upp með. Umfangsmikil uppfærsla á sáttmálanum hefur verið í gangi undanfarna mánuði, þar sem áætlanir og uppsetning sáttmálans voru endurskoðaðar rækilega.

Það var því mikilvægur áfangi þegar uppfærður Samgöngusáttmáli var undirritaður.

Hann er sameiginleg niðurstaða höfuðborgarsvæðisins og ríkisins um framtíðarsýn, sem felur í sér fjölbreytta og raunhæfa samgönguvalkosti. Samgöngusáttmálinn felur ekki aðeins í sér bættar almenningssamgöngur eða hjólastíga.

Hann er einnig sameiginlegt átak ríkis og bæja að vinna á innviðaskuldinni sem við erum svo sannarlega komin í. Það er algjörlega nauðsynlegt að tryggja uppbyggingu stofnvega á höfuðborgarsvæðinu.

Á meðal þeirra verkefna sem munu hafa mikil áhrif á umferðarflæði til og frá Garðabæ er að Hafnarfjarðarvegur verður lagður í stokk í gegnum miðjan bæinn. Enn er nokkuð langt í þá framkvæmd en allt okkar skipulag miðast við hana. Breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar við Kaplakrika í Hafnarfirði og gerð mislægra gatnamóta í Garðabæ á mótum Reykjanesbrautar og Álftanesvegar (rétt við húsnæði Góu) munu verða að veruleika innan fárra ára. Sú framkvæmd er mjög mikilvæg fyrir Garðbæinga. Að sjálfsögðu eru önnur mál okkur líka mikilvæg, ég trúi því t.d. að það styttist í að biðinni löngu eftir mislægum gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar ljúki. Þó fyrr hefði verið.

Samgöngusáttmálinn er afrakstur sameiginlegrar vinnu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins. Hann horfir ekki á einn hóp heldur yfir allt sviðið og reynir að koma til móts við þarfir okkar í nútíma samfélagi. Garðabær er í vexti, þeim mesta af nágrannasveitarfélögunum. Við erum að leggja drög að því að innviðirnir okkar beri þessa öru þróun. Samgöngukerfið er okkar allra, það er hagur okkar allra að samgöngur séu greiðfærar. Auðvitað væri einfalt að segja að við Garðbæingar vildum meiri umbætur hjá okkur og fyrir okkur. En sem betur fer hefur öllum sveitarfélögunum og ríkisvaldinu lánast að horfa á heildarmyndina og þá forgangsröðun sem nauðsynleg er saman. Og við Garðbæingar getum mjög vel við unað.

Í mínum huga var alveg ljóst að ríkið þyrfti að koma að rekstri almenningssamgangna og að sá hluti verkefnisins þyrfti að vera innan ramma nýs samgöngusáttmála. Það er lykilforsenda þess að hægt sé að byggja upp almenningssamgöngurnar og tryggja að þær nái markmiðum sínum. Sáttmálinn í heild, jafnt stofnvegir, sem almenningssamgöngur og aðrir ferðamátar, þarf að vera byggður upp af áætlunum og raunsæi. Það er því lykilforsenda að ríkið mun taka þátt í rekstrinum til framtíðar.

Nú þurfum við að halda vel á spöðunum þar sem fyrsta skrefið er umræða í bæjarráði og bæjarstjórn um þetta mikilvæga mál og hagsmuni okkar. Svo þurfum við að rísa undir ábyrgðinni og á það hef ég lagt þunga áherslu í sameiginlegri vinnu um málið. Það þarf að halda áætlun um kostnað og framvindu. Markmiðið er að bæta flæði samgangna um höfuðborgarsvæðið, styrkja innviðina okkar og leyfa íbúum að ákveða hvernig þeir komast á milli staða.

Ég notaði lítið breytta laglínu hans KK, úr laginu Bein leið hér í yfirskriftinni. Það er freistandi að álykta að hann hafi verið með hugann við hið mikilvæga verkefni að byggja upp samgönguinnviði á höfuðborgarsvæðinu þegar hann orti í sama lagi: „Það kostar svita og blóð – að fara þessa slóð.“

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 30. ágúst 2024.

Horfum í augun og hlustum – skólabyrjun

Grunnskólar Garðabæjar verða settir fimmtudaginn 22. ágúst næstkomandi en alls verða um 2650 börn í grunnskóla Garðabæjar. Skólabyrjun er spennandi, eftirvænting og óöryggi geta kallast á í hugum nemenda. Við búum svo vel að eiga sterka, framsækna og öfluga grunnskóla sem halda vel utan um nemendahópinn okkar. Bærinn fer stækkandi og skólasamfélagið líka. Þar bjóðast spennandi tækifæri fyrir kennara, leiðbeinendur, skólaliða og starfsfólk frístundaheimila.

Virðum starf kennarans

Í Garðabæ er öflugt skólasamfélag sem einkennist af fagmennsku og metnaði. Skólastjórnendur, kennarar og annað starfsfólk skapa þetta umhverfi og gera það vel. Við þurfum áfram að standa vörð um skólana okkar og efla starf þeirra enn frekar. Gætum þess að virða starf kennarans, hrósa fyrir það sem vel er gert og tala ætíð af virðingu um skólann og kennara við barnið. Hrós kostar ekkert en skilar oft miklu. Ræðum beint við kennara eða stjórnendur skólans um það sem hugsanlega má betur fara.  Rödd foreldra skiptir máli og sterk tengsl foreldra við skóla barnsins eru afar mikilvæg.

Hagsmunir barnsins

Skólinn er vinnustaður barnsins, öll uppvaxtarárin frá bernsku og fram á unglingsár. Við þekkjum vel hve mikilvægt það er að líða vel í vinnunni, hlakka til að koma þangað að morgni. Það sama gildir um barnið. Það er afar brýnt að því líði vel í skólanum, það njóti sín og gangi til skóla af gleði að morgni. Á sama hátt og við förum yfir skólabúnaðinn í töskunni þurfum við að gæta vel að því hvað tryggir vellíðan barnsins í skólanum. Spyrjum barnið og sýnum líðan þess áhuga, stöndum vörð um hagsmuni og möguleika þess til þroska og vellíðunar.

Skólahúsnæði

Á síðastliðnum tveimur árum hafa verið gerðar miklar endurbætur á skólahúsnæði bæjarins sem nú sér fyrir endan á. Í Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Álftanesskóla hefur margt verið endurnýjað og loftgæði stórbætt. Í Garðaskóla er enn unnið að endurbótum í góðu samstarfi við skólasamfélagið. Þar verða áfram framkvæmdir í vetur sem raska þó ekki skólastarfi. Nýjasti skólinn, Urriðaholtsskóli, heldur áfram að vaxa og dafna með stækkandi hverfi. Annar áfangi skólans var tekinn í notkun í vetur og framkvæmdir við þann þriðja eru þegar hafnar.

Samskiptasáttmáli Garðabæjar

Í vetur hefja skólarnir innleiðingu á Samskiptasáttmála Garðabæjar. Megin markmið sáttmálans er að þjálfa börn í góðum samskiptum, auka öryggi og vellíðan í námi og leik ásamt því að takast á við ágreining. Samskiptasáttmálinn byggir á markvissri þjálfun allra nemenda í góðum samskiptum. Leiðarljós samskiptasáttmála Garðabæjar er að auka vellíðan, velferð, lífsgæði og heilsu barna.
Með þessu er á markvissan hátt stuðlað að jákvæðum samskiptum og aukinni þekkingu barna, forráðafólks og starfsfólks á einkennum samskiptavanda og eineltis. Með aukinni þekkingu og markvissri þjálfun eiga hlutaðeigendur að geta brugðist við, vita hvert skal leita og hvernig er unnið úr málum.

Nemendastýrð foreldraviðtöl

Þá verður í vetur og þann næsta haldið áfram með innleiðingu og fræðslu um  nemendastýrð foreldraviðtöl sem hafa gengið mjög vel og nemendur hafa tekið þátt í af krafti. Markmið nemendastýrðra foreldraviðtala er meðal annars að virkja nemendur enn betur varðandi eigin markmiðssetningu í námi, mat á stöðu og framtíðarsýn.

Fræðsla

Kennarar fá fræðslu um ofbeldi og hegðunarvanda og hinsegin fræðsla býðst starfsfólki og nemendum. Þá munu umsjónarmenn frístundaheimilanna fara á námskeið sem styrkir þá í starfi sínu á frístundaheimilunum.

Þróunarverkefni skólanna

Í Garðabæ búum við svo vel að hafa metnaðarfullan þróunarsjóð sem styrkir starfsfólk skólanna, en í vetur fara 10 ný þróunarverkefna af stað í grunnskólum Garðabæjar til viðbótar við þau sem eru þegar í gangi.  Þar má sem dæmi nefna; Lærdómsferðir í Flataskóla, Velferðarkennslu í Álftanesskóla, verkefni tengt móttöku nemenda með erlendan uppruna í Urriðaholtsskóla, Lifandi dýr í Sjálandsskóla og fleira. Í verkefninu Betri Garðabær hlaut verkefni sem snýr að næðisrýmum fyrir nemendur einnig brautargengi og mun innleiðing á því hefjast í vetur.

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir

Síðast en ekki síst má nefna að skólamáltíðir verða gjaldfrjálsar frá og með haustinu. Forráðafólk þarf að skrái börn sín eftir sem áður í mataráskrift. Verði mataráskrift barns nýtt minna en 50% í mánuði, þá fellur áskrift barnsins sjálfkrafa niður næsta mánuð á eftir til að stemma stigu við matarsóun. Forráðamenn barnsins bera þá ábyrgð á að skrá barnið í mataráskrift að nýju vilji þeir nýta hana.

Stuðningur við skólabarnið

Einn besti stuðningur sem hægt er að sýna barni er einlægur áhugi, kærleikur og heilbrigð mörk í uppeldi. Spyrja, gefa sér tíma, ræða málin, horfa í augun og hlusta. Læsi er einn af grunnþáttum menntunar en til að börn nái tökum á lestri þurfa þau mikla æfingu heima og í skólanum. Heimanám þarf að vera hluti af heimilislífinu, það tekur tíma og orku og þarf því að komast inn í skipulagið. Hvenær, hvar og með hverjum? Þetta þarf að ræða og skipuleggja. Streita í kringum heimanám á síðustu stundu er slæm upplifun sem þarf að vera undantekning en ekki reglan. Þá er vert að hafa í huga að mikil notkun snjallsíma og tölvu vinnur gegn vellíðan, hvíld og einbeitingu.

Skólabyrjun er tækifæri og áskorun. Styðjum vel við börnin okkar, á heimilinu sem foreldrar og ættingjar, í skólunum sem fagmenn og umsjónaraðilar og  í tómstundunum sem þjálfarar  og ábyrgðaraðilar.  Garðabær er bær þar  sem bæjarbúar  láta sér annt hver um annan – látum okkur einkum annt um unga fólkið okkar sem þarf stuðning og jákvæða athygli.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar grunnskóla

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 23. ágúst 2024

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar 2024

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar 2024 verður haldinn Miðvikudaginn 5. júní kl. 17:00 í Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi 7.

Dagskrá fundarins:

  • Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári. (Sjá skýrslu stjórnar hér.)
  • Reikningsskil.
  • Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
  • Tillögur um lagabreytingar. (Sjá tillögur stjórnar hér.)
  • Ákvörðun félagsgjald.
  • Kjör stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
  • Kjör í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna.
  • Kjör fulltrúa í Kjördæmisráð.
  • Önnur mál.

Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.

Aðalfundur og afmælishóf

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar verður haldinn miðvikudaginn 5.júní kl. 17:00. Dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.

Að loknum aðalfundi um kl. 17:30 býður stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar til afmælisfögnuðar.

Sjálfstæðisfélagið var stofnað þann 3.júní árið 1959 og fagnar því 65 ára afmæli um þessar mundir. Auk þess fagnar Sjálfstæðisflokkurinn 95 ára afmæli á árinu og lýðveldið Ísland 80 ára afmæli. Það er því ærið tilefni til að hittast og skála.
Heiðursgestur á afmælisfögnuðinum er Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Aðalfundurinn og afmælishófið fer fram í félagsheimilinu að Garðatorgi 7.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar

Flakk, fjármál og sitthvað fleira

„Hvað á að koma í Miðgarð?“
„Það þarf að bæta nýtinguna á eignum bæjarins og því finnst mér að það eigi að vera opið lengur í Jónshúsi“
„Ég er ánægð með ykkur og langaði bara að segja þér það“
„Hvað er að gerast með gamla nunnuklaustrið?“
„Það þarf að laga bílastæðamálin hérna í Sjálandinu“
„Snjómoksturinn hefur verið til fyrirmyndar“
„Við þurfum að ganga betur um grenndargámana!“
„Hver er staðan í leikskólamálum?“

Andinn er góður í Garðabæ og íbúar hafa svo sannarlega áhuga á sínu nærumhverfi. Það fann ég vel þegar ég fór á „flakk“ um bæinn núna í febrúar og mars.  Tilvitnanirnar hér eru einmitt úr samtölum mínum við íbúa í Ásgarði, Urriðaholtsskóla, á Dæinn kaffihúsi, í Álftaneslaug og Jónshúsi. Samtölin voru mörg og mjög fjölbreytt. Mér finnst gott og nauðsynlegt að setjast niður með íbúum og hlusta á það sem brennur á fólki. Sum mál var hægt að afgreiða strax, önnur voru eða verða skoðuð nánar og stundum þarf einfaldlega að segja nei.

Það voru allnokkrir foreldrar barna á leikskólaaldri sem gáfu sér tíma til að ræða við mig, fyrir hönd barna sem þá biðu eftir leikskólaplássi. Það voru góð samtöl og mikil brýning. Góðu fréttirnar eru þær að við komum 70 börnum í dvöl núna nýverið. Staða innritunar fyrir haustið er góð og nýlega mátti sjá í fjölmiðlum að yngstu börnin á höfuðborgarsvæðinu sem fá leikskóladvöl eru börn í Garðabæ og Mosfellsbæ. Við erum að bæta upplýsingagjöf um leikskólamálefnin, enda var hún því miður ekki nægilega traust í vetur.

Verjum trausta fjárhagsstöðu

Garðabær er gott og sterkt samfélag sem hefur vaxið hratt á undanförnum árum og við finnum fyrir auknum þjónustukröfum. Traust fjárhagsstaða er undirstaða þess að Garðabær sé vel undir það búinn að mæta þjónustu við fjölgun nýrra íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa, meðal annars á Álftanesi, á Hnoðraholti og í Vetrarmýri.

Við birtum nýlega ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2023 og er hann til umfjöllunar í bæjarstjórn í vikunni. Hann verður staðfestur endanlega í byrjun maí. Afkoman var jákvæð um 1,6 milljarð króna og reikningurinn endurspeglar mikla uppbyggingu í bænum. Miklar framkvæmdir, háir vextir og verðbólga og á heildina litið afar krefjandi rekstrarumhverfi einkenna ársreikninginn fyrir árið 2023. Í ljósi þess er jákvæð afkoma ánægjuefni. Við erum þó mjög meðvituð um að grunnrekstur bæjarins þarf að batna og að skuldahlutföll hafa hækkað nokkuð á því framkvæmdaskeiði sem við erum að ganga í gegnum. Viðamiklar hagræðingaraðgerðir sem komu fram í fjárhagsáætlun ársins 2024 eru því afar þýðingarmiklar og liður í því að verja traustan fjárhag bæjarins.

Það sem gleður mig mest er hversu áhugasamir íbúar bæjarins eru um Garðabæ um að við gerum vel og sinnum bæjarfélaginu. Fyrir vikið hlakka ég til að fara aftur á flakkið og er þakklátur fyrir að íbúar upplifa góða þjónustu í bænum okkar. Íbúar Garðabæjar fylgjast nefnilega vel með, er umhugað að við förum vel með fjármuni og eignir bæjarins og auðvitað að við séum meðvituð um mikilvægi góðrar þjónustu.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 18. apríl 2024

Páskaeggjaleit XD 2024

Páskaeggjaleit XD í Garðabæ fer fram 23.mars n.k. kl.11 að Garðatorgi 7.
Nóg af eggjum í boði fyrir duglega leitara – nokkur risaegg líka fyrir þá sem eru heppnir að finna sérstök merki!
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar