Ný stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
Á aðalfundi Sjálfstæðisfélags Garðabæjar þann 4. júní s.l. var kjörin ný stjórn félagsins. Stjórnina skipa:
Torfi Geir Símonarson, formaður
Stjórnarmenn:
Agla Eir Vilhjálmsdóttir
Bjarni Th. Bjarnason
Eva Björg Torfadóttir
Eydís Sigurðardóttir
Guðjón Máni Blöndal
Jóhann Jónsson
Laufey Johansen
Sigþrúður Ármann
Steinunn Vala Sigfúsdóttir
Tómas Jónasson
Vordís Eiríksdóttir
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var Vordís Eiríksdóttir kjörin varaformaður félagsins og Laufey Johansen var kjörin ritari.
Með stjórn félagsins starfar áheyrnarfulltrúi úr hópi bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Bæjarfulltrúar munu velja áheyrnarfulltrúa á næsta vinnufundi sínum.
Þróunarsjóður grunnskóla í Garðabæ úthlutar 28 milljónum til 15 verkefna
Þróunarsjóður grunnskóla í Garðabæ var stofnaður 2014 og hefur síðan úthlutað árlega um 28 milljónum til margvíslegra þróunarverkefna sem unnin eru í grunnskólum bæjarins. Nánari upplýsingar og yfirlit yfir þróunarverkefnin má sjá á heimasíðu bæjarins. Mörg verkefnanna eru samvinnuverkefni milli skóla og skólastiga, samvinnuverkefni við vísinda- og háskólasamfélagið og erlenda fagaðila.
Framþróun í skólastarfi í Garðabæ
Sjóðurinn var stofnaður til að efla nýbreytni og framþróun í skólastarfi sveitarfélagsins. Einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við grunnskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu- og menningarsvið í samstarfi við skóla, geta sótt um styrk í Þróunarsjóðinn.
Markmið sjóðsins er að styðja við öflugt innra starf skóla með því að veita styrki til verkefna sem stuðla að þróun í kennslu og námi og telja skólastjórnendur að sjóðurinn hafi skilað því hlutverki. Þróunarsjóðurinn er mikilvægur drifkraftur nýsköpunar í skólasamfélaginu okkar.
Áherslur og úthlutun 2025
Áheslur við úthlutun úr Þróunarsjóði nú í ár voru þessar helstar:
- Fjölbreyttir kennsluhættir og samþætting námsgreina
- Félags-, samskipta og vináttuþjálfun með áherslu á samkennd
- Efling verklegra þátta í náttúrufræði á öllum skólastigum
- Námsefnisgerð, nýsköpun og tækni
- Samstarf heimilis og skóla
- Skólasókn; leiðir til að efla áhuga og mætingu nemenda og vinna gegn slakri skólasókn og/eða skólaforðun.
Samtals var sótt um styrki fyrir um 32 milljónir og fimmtán fjölbreytt verkefni innan skólasamfélagsins. Niðurstaðan var sú að öll verkefni fengu styrk, sum fullan styrk en önnur hlutastyrk. Verkefnin ná til margvíslegra þátta í skólastarfi, allt frá málörvun og lestrarþjálfun til félagsfærni, umhverfisvitundar og samþættingar námsgreina.
Dæmi um þróunarverkefni 2025
Sem dæmi má nefna verkefni sem snýr að nútímavæðingu tungumálakennslu, og verkefnið Íslenskan er okkar sem miðar að því að styðja við máltilfinningu barna.
Umhverfismál fá einnig vægi, þar á meðal með verkefninu Ekki rusl heldur fjársjóður! sem fjallar um textílendurnýtingu. Verkefni sem snúa að félagsfærni og vellíðan barna eru áberandi, t.d. verkefnin Vináttufærni, Öflugri strákar og UPPRIGHT – félags- og tilfinningaþjálfun, þessu verkefni styðja við geðrækt og jákvæð samskipti meðal nemenda. Verkefnið Hvað kostar að lifa kennir börnum fjármálalæsi.
Við höldum líka áfram að huga að því að hvetja börn áfram í lestri með verkefnum eins og Litlu Lestrarhestarnir og Að hafa gagn og gaman af lestri.
Sérstaða og sjálfstæði skóla
Auk ofangreindra þátta er grunnskólum í Garðabæ frjálst að sækja um önnur verkefni sem stuðla að sérstöðu og sjálfstæði grunnskóla í Garðabæ, framþróun og öflugu innra starfi sbr. 1. gr. í reglum um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ. Við viljum stuðla að því að nemendur og foreldrar hafi val um fjölbreytta og öfluga grunnskóla með mismunandi áherslur í hugmyndafræði og skólastarfi.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar og bæjarfulltrúi
Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 6. maí 2025.
Sumarkveðja bæjarstjóra
Nú fögnum við sumri! Á þessum árstíma verðum við áþreifanlega vör við gróandann í kringum okkur og mannlífið tekur á sig bjartari svip.
Það er ómissandi partur af vorinu að fylgjast með börnum og ungmennum í bænum okkar blómstra. Barnamenningarhátíðin setti nýverið svip sinn á bæjarlífið þar sem við fengum m.a. að njóta hugmyndaauðgis og hönnunartakta 4. bekkinga á Hönnunarsafninu ásamt því að 5 ára leikskólabörn settu upp sýningu á bókadrekum á Bókasafninu.
Fegrum bæjarlandið
Nú tökum við öll til hendinni í einkagörðum og í bæjarlandinu. Vorhreinsun lóða fer brátt af stað og að vanda hvetjum við íbúa til að nýta sér þá fjöldamörgu gáma fyrir garðaúrgang sem verða staðsettir inni í hverfunum. Það er áberandi að íbúar vilja hafa snyrtilegt í kringum sig og við vinnum ötullega að því að svo verði. Ég vil sérstaklega hvetja félagasamtök, íþróttafélög og flokka, samstillta nágranna og alla hina til að taka að sér að hreinsa svæði innan bæjarlandsins. Mér finnst skipta máli að við veitum þessum hópum styrki til að efla samtakamáttinn og auðvitað að fegra bæjarlandið. Ekki má gleyma plokkinu en stóri plokkdagurinn er einmitt á sunnudaginn.
Náttúruperlan Heiðmörk
Á þessum árstíma gefst okkur kostur á að njóta þeirra mýmörgu útivistarmöguleika í bæjarlandinu. Heiðmörkin er okkur öllum mikilvæg og aðgengi að henni er einmitt í umræðunni núna. Við þurfum að umgangast vatnsauðlindina okkar af ábyrgð og ég virði sjónarmið Veitna um það. Um leið er það okkur öllum kappsmál að aðgengi að upplandinu sé sem best þannig að hið magnaða stígakerfi og áningarstaðir sem þar eru nýtist sem best. Við höfum verið að bæta tengingar að Heiðmörkinni og finnum að það er vinsælt meðal íbúa. Eins hafa skógræktarfélögin unnið ómetanlegt starf við að opna náttúruna fyrir okkur. Það verður að tryggja að Heiðmörkin verði eins aðgengileg og kostur er.
Flakkið og samtölin
Við höfum á undanförnum misserum lagt áherslu á opin og einlæg samskipti við íbúa. Undanfarið hef ég flakkað með skrifborðið mitt, ekki bókstaflega þó, og hitt íbúa á fjölförnum stöðum í bænum. Mér þykir mjög vænt um öll samtölin sem ég hef átt við íbúa á þessum vettvangi og þann áhuga sem fólk sýnir á málefnum bæjarins. Við vinnum skipulega úr þeim ábendingum sem koma af þessum fundum. Annað mikilvægt atriði er að kanna reglulega hug bæjarbúa til þjónustunnar. Núna erum við að skoða þjónustu við fatlað fólk sérstaklega og eins að kanna viðhorf fjölskyldna til breytinga á umgjörð leikskólamála. Allt er þetta hluti af því að „iðka samfélagið“, ræða saman og gera góðan bæ enn betri.
Þorpið í bænum
Ég hef lagt áherslu á opin samskipti eins og að ofan greinir. Það er ótrúlega dýrmætt að finna að í stækkandi samfélagi sem telur nú rúmlega 20 þúsund manns megi enn finna þorpsbrag. Hann er mikilvægur því hann heldur svo vel utan um hið mannlega, upphefur það smáa í hinu stærra og felur í sér einlæg samskipti. Það eru lífsgæði fyrir okkur öll og er að mínu bati bæjarbragur. Jafnvel þorpsbragur!
Talandi um þorp. Í byrjun maí opnar Jazzþorpið okkar góða á Garðatorgi. Um leið og ég óska ykkur gleðilegs sumars þá hlakka ég til að hitta ykkur þar.
Almar Guðmundsson
bæjarstjóri
Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 24. apríl 2025.
Til þjónustu reiðubúin í Garðabæ
Við vitum að góð þjónusta skiptir sköpum, á sama hátt og fátt er meira ergjandi en slæm þjónusta. Það er því sérstakleglega ánægjulegt að sjá að Garðbæingar eru mjög ánægðir með sveitarfélagið sitt og þá þjónustu sem við veitum. Þetta kemur skýrt fram í þjónustukönnun Gallup fyrir árið 2024. Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins, gera samanburð þeirra á milli og fylgjast með breytingum frá fyrri mælingum. Við stöndum vel að vígi í þessum samanburði.
Við leggjum áherslu á að mæta væntingum íbúa um þjónustu í ört stækkandi bæjarfélagi. Það skiptir nefnilega máli að geta haft samband við sveitarfélagið og fengið skjót svör, að sorphirða gangi hnökralaust fyrir sig og að leik- og grunnskólar uppfylli væntingar íbúa. Litlu hlutirnir og stóru – þeir skipta máli.
Skólarnir okkar: Öflug leik- og grunnskólaþjónusta
Garðabær er meðal hæstu sveitarfélaga í ánægju með leikskólaþjónustu og bætir sig á milli ára. Þetta sýnir að umfangsmiklar breytingar á leikskólaumhverfinu síðastliðinn vetur hafa skilað sér vel og að Garðabæjarleiðin er að virka. Mikil ánægja með leikskóla helgast líka af því að í Garðabæ komast börn fyrr inn í leikskóla en víðast hvar annars staðar.
Garðabær skorar hæst í ánægju með grunnskólaþjónustu meðal stærstu sveitarfélaganna. Þetta gefur til kynna að við höfum náð að viðhalda fagmennsku í síbreytilegu skólaumhverfi ásamt því að bæta skólahúsnæði markvisst. Það ætti því ekki að koma á óvart að Garðbæingar eru einnig almennt ánægðir með þjónustu við barnafjölskyldur og við stöndum þar fremst meðal stærstu sveitarfélaganna.
Umhverfið, náttúran og sorphirða
Menningarmálin eru í góðum og blómlegum farvegi. Garðbæingar eru ánægðir með umhverfi sitt, og skyldi engan undra. Hér er stutt í alla áttir í náttúruna og auðvelt að komast hjólandi, gangandi og keyrandi leiðar sinnar. Þeir eru ánægðastir með skipulagsmálin af stærstu sveitarfélögunum. Garðbæingar eru ánægðir með sorphirðuna, en við sjáum tækifæri til að bæta hana enn frekar.
Tækifærin til úrbóta
Það er mikilvægt að bregðast vel við þegar okkur er bent á hluti sem betur mættu fara. Við tökum ábendingum um málefni fatlaðs fólks í sveitarfélaginu alvarlega og höfum verið í mikilli vinnu við að rýna þjónustuna nánar og móta aðgerðir til að bæta úr. Það er okkur líka kappsmál að bæta þjónustu við eldri borgara . Á heildina litið er þó ánægjuefni að notendur þjónustunnar eru ánægðari en þeir sem ekki hafa nýtt sér þjónustuna. Það segir okkur að við erum að gera vel á borði, en ekki bara í orði.
Verkefninu lýkur aldrei
Góð þjónusta er samvinnuverkefni allra sem koma að. Starfsfólk Garðabæjar á heiður skilinn fyrir sína framgöngu, Íbúar bæjarins kunna vel að meta þeirra daglegu störf sem er afar gleðilegt. Ánægja íbúa endurspeglar líka jákvæð viðbrögð við stefnu og áherslum sveitarfélagsins.
Markmið okkar er ávallt að veita íbúum framúrskarandi þjónustu og við ætlum að halda áfram að þróa hana í takt við þarfir bæjarbúa. Við stoppum ekki hér, heldur stefnum á stöðugar umbætur. Það er okkur hvatning að íbúar Garðabæjar séu þeir ánægðustu með þjónustu síns sveitarfélags. Við ætlum okkur að standa undir því trausti áfram og erum meðvituð um að það gerist ekki af sjálfu sér.
Við verðum áfram til þjónustu reiðubúin.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar
Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 21. febrúar 2025.
Félagsfundur
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ, Sjálfstæðisfélag Garðabæjar og Huginn, félag ungs sjálfstæðisfólks í Garðabæ, boða til sameiginlegs félagsfundar.
Dagskrá:
– Val landsfundarfulltrúa félaganna vegna 45.landsfundar Sjálfstæðisflokksins 28.feb-2.mar.
Fundurinn fer fram í Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi 7, þriðjudaginn 11.febrúar kl. 17.
Stjórnir Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ, Sjálfstæðisfélags Garðabæjar og Hugins, fus.
Landsfundur 2025
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að 45. landsfundur Sjálfstæðisflokksins fari fram í Laugardalshöll dagana 28. febrúar – 2. mars 2025.
Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð. Hann er stærsta stjórnmálasamkoma á Íslandi og störf hans hafa mikil áhrif, bæði inn í stjórnmálin en einnig út á við til þjóðarinnar.
Málefnastarf
- Málefnastarf fyrir fundinn verður í þeim 8 málefnanefndum sem starfa innan Sjálfstæðisflokksins. Allar nánari upplýsingar um það verða birtar á xd.is
Framboð í málefnanefndir
- Á landsfundi er kosið í málefnanefndir flokksins, frestur til að skila framboðum er 14. febrúar. Hér skilar þú inn framboði.
Seturétt á landsfundi
- Seturétt á landsfundi eiga flokksráðsfulltrúar flokksins (sem eru sjálfkjörnir) auk þess sem félög og fulltrúaráð kjósa fulltrúa til setu á fundinum.
- Hér getur þú sótt um seturétt á fundinum. Mikilvægt er að óska eftir sæti sem allra fyrst eða í síðasta lagi fyrir 31. janúar. Eftir það er hægt að hafa samband við formenn viðkomandi félaga.
Hér má finna tilboð sem landsfundargestum bjóðast.
Ábyrgur rekstur, framúrskarandi þjónusta – Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 samþykkt
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 5. desember sl. ásamt því að 3ja ára áætlun fyrir árin 2026-2028 var lögð fram. Leiðarljós Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ er nú sem endranær ábyrgur rekstur bæjarfélagsins, lágar skattálögur og framúrskarandi þjónusta við bæjarbúa.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts af íbúðarhúsnæði lækkar í 0,161% af fasteignamati og verður þar með áfram hið lægsta á höfuðborgarsvæðinu.
Áætlað er að bæjarsjóður skili rúmlega 700 m.kr. rekstrarhagnaði á árinu 2025.
Styrk fjármálastjórn – stöðugleiki
Við framlagningu fjárhagsáætlunar fyrir réttu ári síðan lögðum við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins upp með það leiðarljós að stórbæta rekstur A hluta bæjarsjóðs á árinu 2024.
Útkomuspá fyrir árið 2024 sýnir að þetta markmið muni nást. Þrátt fyrir viðvarandi verðbólgu og háa vexti undanfarin ár ásamt miklum launahækkunum og auknum þunga velferðarmála hefur fjárhagslegt aðhald og rekstrarhagræðing skilað stórbættri afkomu A hluta bæjarsjóðs á yfirstandandi ári og þar með einnig samstæðunnar í heild. Þetta hefur náðst án þess að dregið hafi verið úr viðhaldi og endurbótum á fasteignum bæjarins sem ráðist var í af miklum krafti á árinu 2023 og fram haldið á yfirstandandi ári.
Samkvæmt útkomuspá 2024 verður rekstrarhagnaður A hluta bæjarsjóðs 94 m.kr. og rekstrarhagnaður samstæðu A og B hluta samtals 474 m.kr.
Rekstrarhagnaður A hluta bæjarsjóðs 2025 er áætlaður 304 m.kr. og rekstrarhagnaður samstæðu A og B hluta 712 m.kr.
Þessi styrking á rekstri bæjarsjóðs byggir fyrst og fremst á festu við stjórn fjármála bæjarins og eiga bæjarstjóri, sviðstjórar, forstöðumenn stofnana og allt annað starfsfólk Garðabæjar þar stærstan hlut að máli.
Þjónustan efld
Á árinu 2025 verður lögð sérstök áhersla á að mæta ungmennum, eldri borgurum og fötluðu fólki í Garðabæ. Það gerum við m.a. með því að styrkja enn frekar skólaþjónustuna, efla forvarnarstarf barna og ungmenna, vinna gegn félagslegri einangrun eldri borgara ásamt því að hefja undirbúning að nýjum virkniúrræðum fyrir fatlað fólk.
Þessu til viðbótar er ætlunin að nýta stafrænar lausnir í auknum mæli til að bæta enn frekar þjónustu við bæjarbúa.
Unnið verður áfram að hagræðingu í rekstri árið 2025, enda mikilvægt að fjármunir bæjarbúa nýtist sem best.
Mikið fjárfest í innviðum Garðabæjar
Veltufé frá rekstri er ein mikilvægasta kennitalan í rekstri sveitarfélaga. Þetta er fjárhæðin sem afgangs verður þegar búið er að greiða allan rekstrarkostnað og alla vexti af lánum bæjarins. Áætlað er að veltufé frá rekstri bæjarsjóðs á árinu 2024 verði 2.665 m.kr., nái tæpum 2.950 m.kr. á árinu 2025 og aukist síðan jafnt og þétt á næstu árum.
Stóraukið veltufé frá rekstri leiðir til þess að áfram verður fjárfest markvisst í innviðum bæjarins með hóflegri lántöku. Skuldahlutfall hefur lækkað, ekki síst í A sjóði, og mun sú þróun halda áfram á næstu árum.
Samkvæmt fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2026-2028 er áformuð áframhaldandi styrking innviða bæjarins á næstu árum. Áætluð fjárfesting 2025 nemur um 5.000 m.kr. og áætlað er að fjárfest verði fyrir rúmar 15.000 m.kr. á tímabilinu 2026-2028 til frekari uppbyggingar íbúðarsvæða, skólabygginga og skólalóða, íþróttamannvirkja, stíga, útivistarsvæða o.fl.
Ábyrgur rekstur í þágu íbúanna
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ hafa í gegnum tíðina lagt megin áherslu á styrka fjármálastjórn og stöðugleika í fjármálum bæjarins. Þannig hefur verið lagður grunnur að lágum sköttum á bæjarbúa.
Áfram stefnum við ótrauð að því að álagningarhlutföll útsvars og fasteignaskatts í Garðabæ séu áfram hin lægstu meðal stærstu sveitarfélaga landsins, að þjónustukannanir staðfesti mikla ánægju íbúa með þá þjónustu sem bærinn veitir og að íbúar séu ávallt mjög ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Björg Fenger, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs
Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi og formaður velferðarráðs
Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 13. desember 2024.
Kosningar 2024
Nú þegar rétt rúmar tvær vikur eru til kosninga hefur Sjálfstæðisflokkurinn kynnt kosningaáherslur sínar. Áherslurnar í heild má finna á https://xd.is/kosningaaherslur/
Úthringingar eru farnar af stað og fara að mestu fram í kosningamiðstöð kjördæmisins að Silfursmára 4 í Kópavogi. Þangað eru allir velkomnir og opið frá kl. 14:00 alla daga.
Þegar nær dregur munum við svo hefja hringingar frá félagsheimilinu að Garðatorgi og biðjum þá sem hafa tök á að leggjast á árarnar með okkur að vera í sambandi, kíkja við og taka með okkur símtöl.
Við hlökkum til næstu vikna í kosningabaráttunni!









