Fundur í fulltrúaráði

Fundur verður haldinn í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju, Kirkjulundi 3, Garðabæ mánudaginn 1. desember 2025, kl. 18:00
Dagskrá:
1.Tillaga stjórnar Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna um aðferð við val á frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026.
2.Kosning kjörnefndarmanna.

3.Önnur mál.

Seturétt á fundinum eiga fulltrúar í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.

Einstaklingar geta kannað hvort þeir eigi sæti í fulltrúaráðinu með því að fletta sér upp á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins ⁦www.xd.is⁩ undir flipanum Mínar síður.
Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.

Aðalfundur fulltrúaráðsins

Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ

Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ verður haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisfélags Garðabæjar að Garðatorgi 7, Garðabæ, föstudaginn 21. nóvember 2025, kl. 17:00.

Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál

Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ

Leik­skólar sem virka: Garða­bær í fremstu röð

Það er fagnaðarefni að við séum að ræða leikskólamál á Íslandi. Höldum því endilega áfram og tölum aðeins um leikskólana í Garðabæ. Hér er leikskólastarf í sífelldri þróun og við rekum kerfi sem virkar. Hér eru leikskólabörn 7,4% af íbúum sem er afar hátt hlutfall á landsvísu og þeim hefur einnig fjölgað einna hraðast. Við finnum að fjölskyldurnar vilja setjast að í Garðabæ og þar með fjölgar börnunum hratt og örugglega.

Foreldrar og íbúar í Garðabæ eru ánægðastir meðal sveitarfélaga með leikskólastarf. Þetta sýnir íbúakönnun Gallup fyrir árið 2024 og ný könnun sem Garðabær lét gera meðal foreldra leikskólabarna í kjölfar breytinga á starfsemi leikskóla í bænum. Garðabær hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að bæta starfsumhverfi leikskólanna með það að markmiði að auka gæði starfsins og tryggja stöðugleika.

Heimild: úttekt Viðskiptaráðs Íslands á nokkrum þáttum leikskólastarfs

Leikskólarnir í Garðabæ eru enda mikilvægasti grunnurinn að farsælu samfélagi. Þar hefst ferðalag barnanna í námi, félagslegum tengslum og leik. Þar mótast fyrstu kynni þeirra af skólasamfélaginu sem fylgir þeim næstu árin.

Garðabær hefur ávallt verið framsýnn í leikskólamálum og á undanförnum árum höfum við unnið að því að styrkja leikskólastarfið í bænum og skapa umhverfi sem er gott fyrir bæði börn, starfsfólk og foreldra. Eitt af því mikilvægasta í þjónustuloforðinu okkar er að fjölskyldur geti gengið að leikskólaplássum og öflugu, öruggu og góðu skólastarfi. Garðabær er skólabær og við erum stolt af því.

Tölum um leikskólana

En já, tölum aðeins um leikskólana í Garðabæ. Hér kemur stutta útgáfan:

  • Aðgengi að leikskólaplássi. Foreldrar geta treyst á að leikskóladvöl hefjist í Garðabæ í góðu samhengi við lok fæðingarorlofs. Á þessu ári hafa öll börn fædd fyrir 18. nóvember 2024 fengið boð um leikskólapláss
  • Meiri sveigjanleiki. Foreldrar geta stýrt viðveru barnanna sinna, milli daga og vikna. Það skiptir t.d. máli fyrir fjölskyldur þar sem foreldrar eru í vaktavinnu.
  • Samræmd skóladagatöl. Í Garðabæ eru skóladagatöl leik- og grunnskóla samræmd. Því eru skipulagsdagar og frí fyrirsjáanlegri og minna íþyngjandi fyrir frídaga fjölskyldunnar.
  • Leikskólar Garðabæjar eru nánast alltaf opnir. Leikskólar Garðabæjar loka aðeins yfir dymbilvikuna og fyrsta virka dag í janúar. Að öðru leyti eru leikskólarnir alltaf starfandi. Foreldrar stýra því hvenær börn taka sumarfrí. Viðskiptaráð Íslands segir Garðabæ vera með fæsta skilgreinda lokunardaga stóru sveitafélaganna og taka þá til greina skipulagsdaga.
  • Fáliðun sjaldgæf. Fáliðun er sem betur fer sjaldgæf í Garðabæ og henni er aðeins beitt til þess að tryggja öryggi barna í leikskólanum. Verulegar umbætur hafa náðst í þessum efnum undanfarin misseri.
  • Valfrelsi. Það er foreldra að velja leik- og grunnskóla barnanna sinna í Garðabæ. Þeir hafa val og við treystum þeim til að velja sjálfir hvað hentar börnunum best.

Bætt starfsumhverfi hjálpar starfsfólki og fjölskyldum

Sem sagt, með nýju skipulagi sem við innleiddum á árunum 2023-2024 hefur tekist að draga úr álagi á starfsfólk, auka svigrúm til undirbúnings starfsfólks og tryggja að leikskólarnir séu fullmannaðir á þeim tíma dags sem börnin eru flest. Við höfum viljandi valið að kalla þetta ekki „Garðabæjarleiðina“ en staðreyndin er sú að þessi aðferðafræði hefur skilað miklum árangri.

Ánægja foreldra og starfsfólks

Samkvæmt könnun sem unnin var af Gallup á árinu fyrir Garðabæ eru foreldrar almennt mjög ánægðir með leikskólastarfið í Garðabæ. Meirihluti þeirra telur að breytingarnar hafi haft jákvæð áhrif á starfsemina, ekki síst þegar kemur að sveigjanleika í dvalartíma og fríum. Fjölskyldur hafa haft betra svigrúm til að skipuleggja sameiginlegan tíma.

Spurning til foreldra: Á heildina litið, hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskólans?
Spurning til foreldra: Telur þú að sveigjanlegur dvalartími í leikskólanum sé jákvæður eða neikvæður fyrir skipulag fjölskyldunnar?

Foreldrar eru almennt ánægðir með þjónustu leikskólanna og nefna sérstaklega sveigjanleika í fríum og dvalartíma sem einn helsta styrkleika kerfisins. Margir nefna einnig ánægju með því að börn komist snemma inn í leikskóla eftir fæðingarorlof, sem auðveldi bæði foreldrum og börnum aðlögun. Mun fleiri telja að breytingarnar hafi haft jákvæð áhrif á líðan barna sinna í leikskólanum (36%) en neikvæð (8%). 46% foreldra eru ánægð með breytingarnar, 31% segja hvorki/né (eru hlutlaus) og 23% eru óánægð.

Starfsfólk leikskólanna lýsir jafnframt mikilli ánægju með faglegt samstarf, gott andrúmsloft og stuðning frá stjórnendum. Það skiptir sköpum, því öflugt starfsfólk er forsenda góðs leikskólastarfs og segir starfsfólk leikskólana vera eftirsóknarverðari vinnustaði.

En hverjar voru veigamestu breytingarnar?

Með því að stytta viðveru barna í leikskólanum í 40 tíma, en samtímis leyfa fjölskyldum að stýra viðveru barnanna í samræmi við þarfir fjölskyldunnar, hefur tekist að tryggja stöðuga mönnun leikskólanna.

Þannig hefur tekist að forðast tímabil síðdegis með fáliðuðu starfsfólki, auka faglega nærveru og bæta skipulag starfsins.

Leikskólar Garðabæjar loka ekki yfir sumarið og í raun eru þeir aðeins lokaðir í dymbilvikunni. Foreldrar skrá viðveru barnanna í jóla- og vetrarfríi og þá er hægt er að fá afslátt af leikskólagjöldum með að taka samfleytt frí yfir vetrartímann.

Þetta fyrirkomulag hefur skapað betra skipulag, jafnað álag á starfsfólk og aukið sveigjanleika fyrir fjölskyldur. Fyrst og fremst hefur það þýtt að leikskólarnir loka mjög sjaldan vegna fáliðunar. Þaðskiptir miklu máli.

Breytingar sem byggja undir framtíðina

Við sjáum nú þegar að nýja skipulagið hefur skapað jákvæðan grunn fyrir áframhaldandi þróun. Með skýrari áherslum á fagmennsku, starfsþróun og góðan aðbúnað getum við haldið áfram að laða til okkar og halda hjá okkur hæft starfsfólk. Það er eftirsóknarvert að vinna í leikskólum Garðabæjar.

  • Garðabær hefur lagt áherslu á að efla faglegt starf og menntun starfsfólks.
  • Starfsfólk getur til dæmis sótt um í þróunarsjóð leikskóla og sinnt nýsköpunarverkefnum í skólastarfi.
  • Starfsfólk getur sótt nám í leikskólakennarafræðum með stuðningi bæjarins.
  • Í hverjum leikskóla eru starfandi fagstéttir sem sinna snemmtækri íhlutun og sérkennslu, sem styður við faglegt starf og dregur úr álagi.

Samvinna er lykillinn

Það sem hefur einkennt þessa breytingavinnu er gott samtal við foreldra, leikskólastjóra og starfsfólk. Við höfum lagt áherslu á að hlusta, ræða og þróa útfærslur í samvinnu við þá sem standa nær leikskólastarfinu. Þannig tryggjum við að breytingar sem teknar eru á pappír skili sér í raunverulegum umbótum í daglegu starfi.

Við viljum þakka öllum þeim sem hafa tekið þátt í þessari vegferð fyrir góða samvinnu og uppbyggilegar ábendingar sem gera gott starf enn betra.

Það er ánægjulegt að sjá að breytingarnar hafa mælst vel fyrir og að foreldrar og starfsfólk finni raunverulega fyrir jákvæðum áhrifum þeirra. Við höldum áfram á sömu braut með það að markmiði að leikskólastarf í Garðabæ verði áfram til fyrirmyndar á landsvísu.

Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Margrét Bjarnadóttir, formaður leikskólanefndar

Greinin birtist fyrst á Vísir.is, 13. nóvember 2025.

Viðburðir fram undan

Kæru félagar.

Kosningavetur er farinn af stað og á næstu vikum mun fulltrúaráðið í Garðabæ taka ákvörðun um hvaða leið verður farin við val á lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ.

Það er ljóst að þegar kosningabaráttan fer af stað af fullum krafti verður mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa gott fólk til taks sem hefur áhuga á að hjálpa til við baráttuna á einn eða annan hátt. Við höfum því sett upp skráningarsíðu á www.gardar.is/bakvordur/ þar sem þú getur skráð þig í nokkurs konar bakvarðasveit. Þetta auðveldar okkur að vera í sambandi við þig þegar að verkefninu kemur.

Við sitjum þó ekki auðum höndum og vildum minna á nokkra viðburði fram undan.

Þann 19.nóvember n.k. kl. 18:00 koma til okkar þau Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður, og Hildur Sverrisdóttir, þingmaður í pólitískar pælingar. Á þessum viðburði má búast við að pólitíkin verði krufin og talað tæpitungulaust um stöðuna í þjóðfélaginu. Létt og skemmtileg stemning, bjór og búbblur.

Þann 29.nóvember frá kl. 13-16 fer svo fram aðventuhátíð Garðabæjar á Garðatorgi. Síðustu ár hefur Sjálfstæðisfélagið boðið gestum upp á heitt súkkulaði í félagsheimilinu og engin breyting verður þar á. Endilega takið daginn frá.

Þá vekjum við athygli á viðburði nú um helgina en nýlega kom út um bók Hrannars Braga Eyjólfssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um séra Braga Friðriksson. Bragi var einn af máttarstólpum Garðabæjar og samfélagsins hér og kom að mörgum mikilvægum verkefnum í félagslegri uppbyggingu bæjarins. Útgáfu bókarinnar verður fagnað með hátíðarmessu á sunnudaginn n.k. 9.nóvember kl. 11:00 í Vídalínskirkju þar sem Hrannar Bragi mun einnig vera með bókina til sölu og áritar eintök.

Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

Skráning í bakvarðasveit

Kosningavetur er farinn af stað og á næstu vikum mun fulltrúaráðið í Garðabæ taka ákvörðun um hvaða leið verður farin við val á lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ.

Það er ljóst að þegar kosningabaráttan fer af stað af fullum krafti verður mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa gott fólk til taks sem hefur áhuga á að hjálpa til við baráttuna á einn eða annan hátt. Við höfum því sett upp skráningarsíðu á www.gardar.is/bakvordur/ þar sem þú getur skráð þig í nokkurs konar bakvarðasveit. Þetta auðveldar okkur að vera í sambandi við þig þegar að verkefninu kemur.

Garðar Grásteinn – Október 2025

Frá stjórn Sjálfstæðisfélagsins – félagsgjöld

Kæri félagsmaður

Sjálfstæðisfélag Garðabæjar hefur frá árinu 1959 starfað ötullega að því að vinna Sjálfstæðisstefnunni framgang í bæjarmálunum sem og landsmálunum. Félagið hefur alla tíð staðið fyrir öflugu félagsstarfi og vinsælum viðburðum í bænum. Stjórn félagsins er skipuð úrvalsfólki sem leggur til tíma sinn og krafta í sjálfboðavinnu til að efla starf félagsins, bjóða reglulega upp á samtal um málefni líðandi stundar og halda viðburði sem gagn og gaman er af.

Sjálfstæðisflokkurinn bauð fyrst fram lista í sveitastjórnarkosningum í Garðahreppi árið 1966 og hlaut meirihluta atkvæða. Síðan þá hefur flokkurinn verið óslitið í meirihluta í sveitastjórn Garðahrepps og síðar Garðabæjar. Það skiptir máli hver er við stjórnvölinn og það þekkja Garðbæingar. Garðabær er sveitarfélag í fremstu röð sem býður upp á hágæða þjónustu, ábyrgan rekstur og hefur alla tíð verið eftirsóttur staður til að búa á. Þannig viljum við að það verði áfram.

Á næstu dögum mun Sjálfstæðisfélagið senda út greiðsluseðla vegna félagsgjalda ársins. Allir skráðir flokksmenn búsettir í Garðabæ fá greiðsluseðilinn sem hljóðar upp á 6.500.- kr. en á aðalfundi félagsins í vor var gjaldið hækkað í fyrsta sinn frá árinu 2019. Greiðsluseðilinn er með rúmum eindaga og engum er skylt að greiða hann, kjósi þeir svo og auðvelt er að fela seðilinn í netbanka. Upplýsingar um skráningu í flokkinn má svo finna á Mínum Síðum á xd.is og þar má gera breytingar á aðild.

Félagsgjöldin eru þó mikilvægasti tekjuliður Sjálfstæðisfélagsins. Starfssemi félagsins hvílir á þessu framlagi félagsmanna og það er fyrir þessa fjármuni sem félagið getur haldið úti öflugu starfi, góðu samtali, frábærum viðburðum og staðið straum af stjórnmálastarfi og kosningabaráttum. Þetta síðastnefnda er mikilvægara nú en áður, enda stendur nú þegar yfir undirbúningur fyrir sveitastjórnarkosningar sem fara fram þann 16.maí n.k.

Við erum stolt af Garðabæ og þakklát fyrir að hafa fengið umboð bæjarbúa til að leiða stjórn bæjarins um áratugaskeið. Við vitum að það er ekki sjálfsagt, en við vonum að verk okkar hingað til gefi góð fyrirheit um það sem koma skal. Við hlökkum til að ganga til kosninga og vonum að félagsmenn vilji aðstoða okkur í þeirri vegferð.

Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar

Sterkt árshlutauppgjör bæjarsjóðs – öflug þjónusta í brennidepli

Við framlagningu fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2025 höfðum við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eins og ávallt að leiðarljósi ábyrgan rekstur bæjarfélagsins, lágar skattálögur og framúrskarandi þjónustu við bæjarbúa.

Meðal velferðarmála sem við horfðum sérstaklega til á yfirstandandi ári var að vinna gegn félagslegri einangrun eldra fólk, þróa áfram og bæta þjónustu við fatlað fólk ásamt því að hefja undirbúning að nýjum búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk.

Sterk staða bæjarsjóðs

Árshlutauppgjör Garðabæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2025 endurspeglar sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs og rekstur í góðu jafnvægi. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 287 milljónir króna, grunnreksturinn eflist, sjóðsstreymi bæjarsjóðs styrkist enn og uppgjörið er í góðum takti við fjárhagsáætlun ársins.

Þrátt fyrir miklar fjárfestingar í innviðum bæjarins á fyrri hluta ársins 2025 voru langtímalántökur hóflegar og skammtímaskuldir lækkuðu verulega á þessu sama tímabili.

Áætlað er að bæjarsjóður skili rúmlega 700 m.kr. rekstrarhagnaði á árinu 2025.

Veltufé frá rekstri er ein mikilvægasta kennitalan í rekstri sveitarfélaga. Þetta er fjárhæðin sem afgangs verður þegar búið er að greiða allan rekstrarkostnað og alla vexti af lánum bæjarins. Veltufé frá rekstri bæjarsjóðs nam rúmum 1.400 milljónum króna á fyrri hluta ársins sem er liðlega helmingurinn af áætluðu veltufé frá rekstri á árinu 2025.

Samanlagt veltufé frá rekstri bæjarsjóðs Garðabæjar síðastliðin átta ár, 2017-2024 og það sem er af árinu 2025, nam tæpum 16.000 m.kr. – sextán þúsund milljónum króna, á verðlagi hvers árs. Á sama tíma hafa Garðbæingar búið við lægsta útsvarið og eitt lægsta álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði meðal stærstu sveitarfélaga landsins.

Geysilega öflugt virkniþing eldra fólks

Nú í ágúst stóð Garðabær ásamt félögum eldri borgara í Garðabæ og á Álftanesi að afar vel heppnuðu virkniþingi eldra fólks í Miðgarði. Markmið með þinginu var að stuðla að félagslegri virkni og auknum lífsgæðum eldra fólks í Garðabæ. Fjöldi fólks sótti þingið og kynnti sér allt það fjölbreytta starf sem eldri borgurum í Garðabæ stendur til boða.

Harpa Rós Gísladóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður öldungaráðs Garðabæjar setti þingið, en öldungaráð samþykkti fyrr á árinu metnaðarfulla aðgerðaáætlun í málefnum eldra fólks í Garðabæ fyrir árin 2025 og 2026. Stefna Garðabæjar í málefnum eldra fólks var samþykkt í bæjarstjórn 2016 og gildir til ársins 2026. Hin nýja aðgerðaáætlun öldungaráðs byggir á þeirri stefnu.

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur skýra framtíðarsýn í málefnum eldra fólks. Markmiðið er að efla  lífsgæði eldri íbúanna okkar með heildstæðri sýn á þjónustu bæjarins og rík áhersla er lögð á stöðuga þróun í málaflokknum.

Með öflugu starfi eldra fólksins okkar er lagður grunnur að samheldni og blómlegu samfélagi í Garðabæ.

Frístundaþjónusta fyrir fötluð börn og ungmenni

Sveitarfélög skulu veita fötluðum börnum og ungmennum frístundaþjónustu eftir að reglubundnum skóladegi þeirra lýkur og á dögum, öðrum en lögbundnum frídögum, sem skólar starfa ekki.

Frístundaþjónusta 5.-10. bekkjar nemenda í Garðabæ heitir Garðahraun og er til húsa á efri hæð íþróttamiðstöðvarinnar á Álftanesi. Þar fá 15-18 einstaklingar að jafnaði frístundaþjónustu.

Frá hausti 2025 hætti Garðabær að mestu að kaupa frístundaþjónustu fyrir fötluð ungmenni (16-18 ára) af Vinaskjóli í Hafnarfirði. Þess í stað er nú tekið á móti sjö ungmennum í Garðahrauni þar sem  þau hafa viðveru að loknu skólastarfi ásamt 5.-10. bekkjar nemendum. Að auki er aðstaða Elítunnar, sem er félagsmiðstöð Álftanesskóla, nýtt að hluta fyrir frístundaþjónustu ungmennanna.

Áætlað er að eftir tvö ár muni 20-25 einstaklingar í Garðabæ kalla eftir frístundaþjónustu fatlaðra ungmenna. Velferðarráð er með á dagskrá hjá sér að finna varanlegt húsnæði fyrir starfsemina og áformar að niðurstaða í málinu liggi fyrir á fyrri hluta næsta árs.

Búsetukjarni fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti

Garðabær rekur um þessar mundir um 30 búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í bænum. Ýmist er um að ræða herbergjasambýli, félagslegar íbúðir eða búsetukjarna. Í september 2019 opnaði sex íbúða búsetukjarni í Unnargrund 2 og sjö íbúða kjarni í Brekkuási 2 opnaði í nóvember 2023. Einnig er Garðabær í samstarfi við Brynju leigufélag um íbúðir fyrir öryrkja og fatlað fólk. Brynja leigufélag á nú 29 íbúðir í bænum og þeim mun fjölga nokkuð á næstu árum.

Nú er á undirbúningsstigi bygging 6-7 íbúða búsetukjarna í Hnoðraholti fyrir einstaklinga sem þurfa sólarhringsþjónustu. Auk þess er til skoðunar 4-6 íbúða búsetueining í Hnoðraholti fyrir fatlaða einstaklinga sem geta búið sjálfstætt með stuðningi frá búsetukjarna. Málið er í vinnslu hjá velferðarráði sem hefur í samráði við skipulagsnefnd Garðabæjar lagt til staðsetningu tveggja lóða á fallegum stað í háholti Hnoðraholts undir starfsemina.

Forhönnun búsetukjarnans er hafin og arkitekt kominn að verkinu. Stefnt er að því að frumteikningar verði til kynningar á fundi velferðarráðs í október nk.

Vinna rýnihópa um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ

Í maí síðastliðnum voru tveir rýnihópar kallaðir til, annar hópurinn samanstóð af fötluðum einstaklingum 18 ára eða eldri, foreldrum eða aðstandendum fatlaðra einstaklinga 18 ára eða eldri og talsmanni einstaklings með fötlun 18 ára eða eldri, hinn hópurinn samanstóð af foreldrum eða aðstandendum fatlaðra barna 0-18 ára. Umræðustjórn var í höndum starfsmanns Gallup.

Markmið með vinnu rýnihópanna var að öðlast dýpri skilning á viðhorfum, upplifun og þörfum þjónustuþega og kanna væntingar fólks til þjónustunnar með það að markmiði að styðja við umbætur og þróun þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ.

Meðal þess sem kom fram hjá rýnihópunum er að búsetuúrræði vega einna þyngst í lífi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra. Öruggt búsetuúrræði er lykillinn að auknu sjálfstæði fatlaðra barna og ungmenna og í raun forsenda þess að fatlað fólk fái að lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi.

Rýnihóparnir lögðu til úrbætur í málaflokknum í nokkrum liðum sem velferðarráð hefur fengið í sínar hendur og samþykkti í kjölfarið að hefja vinnu við endurskoðun á stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Garðabæ á grundvelli niðurstöðu rýnihópavinnunnar.

Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi og formaður velferðarráðs Garðabæjar

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 25. september 2025.

Skóla­bærinn Garða­bær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur

Eitt af meginmarkmiðum skólastarfs í Garðabæ er að tryggja öllum nemendum góðan undirbúning fyrir frekara nám og þátttöku í samfélaginu. Í Garðabæ er starfrækt öflugt og fjölbreytt skólakerfi þar sem foreldrum er boðið upp á valmöguleika milli skóla, sem hver um sig hefur sín sérkenni. Við eigum að auki í góðu samstarfi við tvo sjálfstætt starfandi skóla í bænum og á næsta ári bætist sá þriðji við.

Á síðasta skólaári hófst í samstarfi við Deloitte ítarleg greining á námsárangri og líðan nemenda í 1.–10. bekk. Markmiðið var að fá skýrari mynd af stöðunni, byggja á gögnum síðustu ára og finna leiðir til umbóta í skólastarfi.

Niðurstöðurnar sýna að þróun lesfimi í Garðabæ er stöðug, en á sama tíma hefur hún dalað á landsvísu. Nemendur í Garðabæ skora almennt hærra í lesfimi en landsmeðaltal. Þá er hlutfall þeirra sem ná ekki lágmarksviðmiði lægra en í öðrum sveitarfélögum. Einnig sýna niðurstöður að líðan nemenda í Garðabæ er betri en annars staðar á landinu. Aftur á móti hefur fjöldi fjarvista aukist, sem er áskorun sem við tökum alvarlega. Niðurstöður í íslensku og stærðfræði benda til þess að nemendur í 10. bekk standi almennt sterkar en yngri hópar, þó að samanburður sé flóknari vegna ólíkra matsviðmiða.

Þessar niðurstöður eru ánægjulegar en þær minna okkur jafnframt á að skólastarf er sífellt í þróun og alltaf er svigrúm til að bæta.

Samræmt námsmat í öllum árgöngum

Til að efla námsmat og stuðning við hvern og einn nemanda verður á þessu skólaári lögð sérstök áhersla á Matsferilinn. Garðabær hyggst leggja matsferilspróf fyrir alla nemendur í 4.–10. bekk og gengur þar með lengra en landslög gera ráð fyrir, en þau kveða á um próf í 4., 6. og 9. bekk. Prófin veita skýra mynd af stöðu og framvindu í námi og nýtast nemendum, foreldrum, kennurum og sveitarfélaginu öllu.

Samhliða þessu verða matskvarðar samræmdir í 4., 7. og 10. bekk. Með því tryggjum við að hæfnin á bak við einkunnir verði sambærileg milli skóla. Þetta skapar réttlátara námsmat og veitir foreldrum og nemendum skýrari upplýsingar, á sama tíma og kennarar fá betri gögn til að grípa inn í og fylgja eftir árangri.

Lesskilningsverkefni

Í vetur hefst nýtt rannsóknar- og íhlutunarverkefni í samstarfi við Háskóla Íslands sem snýr að því að efla lesskilning á meðal barna í Garðabæ. Nemendur í 7.–10. bekk og íslenskukennarar þeirra taka þátt í sex vikna markvissri vinnu með orðaforða, texta og ritun. Verkefninu er ætlað að styrkja lesskilning á skipulegan og árangursríkan hátt og niðurstöður verða nýttar til áframhaldandi umbóta í skólunum.

Líðan og mætingar

Í Íslensku æskulýðsrannsókninni kemur fram að nemendum í Garðabæ líður almennt betur en jafnöldrum þeirra í öðrum sveitarfélögum. Þetta er afar jákvætt og endurspeglar sterkt faglegt starf í skólunum og gott samstarf heimila og skóla. Samhliða þessu hefur þó komið í ljós að fjarvistum nemenda hefur fjölgað. Þessi þróun sést víðar á landinu, meðal annars vegna breyttra venja eftir heimsfaraldur, en við leggjum áherslu á að vinna markvisst með fjölskyldum og skólum að lausnum. Sérstakt verkefni er hafið sem beinist bæði að forvörnum og stuðningi við börn sem eiga erfitt með að mæta.

Skóladagatal og framtíðarsýn

Garðabær uppfyllir að fullu lögbundnar kröfur um lágmarksfjölda skóladaga. Skóladagatöl grunnskóla og leikskóla eru samræmd og nú gefin út á rafrænan hátt til tveggja ára í senn, þannig að foreldrar geti bætt þeim beint við sín dagatöl og skipulagt frí og leyfi í samræmi við skólastarfið.

Fram undan liggur mikilvægt verkefni: að nýta niðurstöður greininga og prófa til að gera gott skólastarf í Garðabæ enn betra. Með markvissu námsmati, samræmdum gögnum og öflugum verkefnum sem efla bæði lesfimi og lesskilning eru grunnskólar Garðabæjar vel í stakk búnir til að mæta nemendum þar sem þeir eru. Við viljum tryggja að þau hafi öll tækifæri til að ná árangri og blómstra í námi og leik.

Við erum stolt af þeirri stöðu sem niðurstöður sýna og þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin í skólunum.

Um leið erum við staðráðin í að halda áfram að þróa skólastarf með hagsmuni barnanna okkar í fyrirrúmi.

Það er eitt allra mikilvægasta verkefnið í skólabænum Garðabæ.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður grunnskólanefndar Garðabæjar

Greinin birtist fyrst á Vísir.is, 15. september 2025.

Samstarf, lærdómur og samfélag – Skólabyrjun 2025

Inn í grunnskóla Garðabæjar trítla nú rúmlega 2600 skólabörn, sum hver eru að hefja nám í fyrsta skiptið, önnur að koma inn á unglingastigið og einhver að ganga inní nýjan skóla. Önnur þekkja skólann sinn vel og horfast í augu við nýtt ár fullt af tækifærum.

Jákvætt skólaumhverfi

Í Garðabæ búum við svo vel að geta boðið upp á öflugt skólasamfélag, þar sem kennarar, stjórnendur og annað starfsfólk leggja sig fram með fagmennsku og hlýju til að stuðla að farsæld nemenda. Í Garðabæ leggjum við ríka áherslu á að skólastarfið sé uppbyggjandi og hvetjandi. Við viljum að börnin finni að þau séu í öruggu og jákvæðu umhverfi.

Samspil heimilis og skóla

Samstarf heimilis og skóla er lykillinn að góðum árangri og við fullorðna fólkið þurfum að vera virk í baklandi barna okkar. Þegar foreldrar ræða á jákvæðan hátt um skólastarfið, hrósa starfsfólki og nemendum fyrir vel unnin verk og tala við kennara eða stjórnendur á lausnamiðaðan um það sem betur má fara stuðlar það að heilbrigðu skólastarfi í sífelldri þróun.

Skólinn er vinnustaður barnanna okkar. Þar læra þau, vaxa og dafna. Það er því auðvitað mikilvægt að barnið hlakki til þess að mæta í skólanum, því líði vel í skólanum og frístundastarfi og rútínan heima styðji við vellíðan barnsins í skólanum. Mikilvægt er að virða vinnutíma skólanna og stilla frítíma barnanna í takt við skólafrí. Ég hvet foreldra og forráðamenn til að stuðla að vellíðan barna sinna með því að fylgjast vel með líðan þeirra, koma á skipulagi heimanáms, takmarka tíma í snjalltækjum, kynnast vinum barnanna og jafnvel foreldrum þeirra, huga að hvíldartíma og samveru fjölskyldunnar.

Fræðsludagar

Í upphafi skólaársins fóru fram fræðsludagar hjá starfsfólki þar sem áhersla var lögð á fagþróun með skapandi hætti. Kennarar fengu tækifæri til að auka þekkingu sína á netöryggi og skjátíma barna, læra nýjungar í Google-kennsluumhverfi, farið var yfir hvernig spil og leikir geta styrkt bæði nám og félagsfærni, kenningar um lesskilning ásamt verkefnum í samstarfi við Háskóla Íslands. Þessi vinna eflir fagmennsku og ýtir undir fjölbreytt, öruggt og skapandi umhverfi fyrir nemendur.

Samskiptasáttmáli

Samskiptasáttmáli Garðabæjar er að festa sig í sessi sem viðmið í öllu skólastarfi Garðabæjar. Hann var innleiddur fyrir ári síðan. Samskiptasáttmálinn byggir á markvissri þjálfun allra nemenda í góðum samskiptum. Leiðarljós samskiptasáttmála Garðabæjar er að auka vellíðan, félagsþroska, lífsgæði og heilsu barna. Með sameiginlegri þjálfun, skilningi og markvissum aðferðum stuðlum við jákvæðum samskiptum, vellíðan og vináttu í námi og leik. Mikilvægt er að allir viti hvernig þeir eiga að bregðast við erfiðum samskiptum, hvert þeir geti leitað og hvernig unnið er úr málunum.

Stuðningur

Í skólabyrjun felast ýmis tækifæri og áskoranir. Styðjum vel við börnin okkar, á heimilinu sem foreldrar og ættingjar, í skólunum sem fagmenn og umsjónaraðilar og í tómstundunum sem þjálfarar og ábyrgðaraðilar. Garðabær er bær þar sem bæjarbúar láta sér annt hver um annan – látum okkur einkum annt um unga fólkið okkar sem þarf stuðning og jákvæða athygli.

Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður skólanefndar og bæjarfulltrúi

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 29. ágúst 2025.