Kosningakaffi, kosningavaka og akstur á kjörstað

Sjálfstæðisflokkurinn býður í kosningakaffi á kjördag.

Kosningakaffið er opið frá kl. 11-18 í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í Vídalínskirkju. Verið velkomin.

Kosningavaka Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ verður í golfskála GKG. Húsið opnar kl. 21:30.

Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ aðstoðar Garðbæinga sem þurfa aðstoð við að komast á kjörstað, bæði til að kjósa utan kjörfundar í Hlíðarsmára eða á kjördag.

Til að fá akstur er best að hafa samband á gardar@xd.is eða í síma 616-7522.

Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ 2026

mockups-design.com

Frambjóðendur

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ 2026

Skoðunarferð um Garðabæ fyrir eldri íbúa

Við bjóðum eldri íbúum Garðabæjar í rútuferð um bæinn með frambjóðendum okkar,  til að sýna ykkur þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað og þá framtíðarsýn sem við höfum fyrir Garðabæ.

Farið verður þriðjudaginn 28. apríl frá félagsmiðstöðinni við Lambamýri kl. 13, Jónshúsi kl. 13:10, Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi 7 kl. 13:20 og Urriðaholtsskóla kl. 13:30. Ferðinni lýkur um kl. 15:00. Stoppað verður í kaffibolla og meðlæti á leiðinni.

Ég hvet ykkur öll til að skrá ykkur fyrir kl. 12, mánudaginn 27. apríl með því að senda tölvupóst með nafni, símanúmeri og brottfararstað á gardar@xd.is. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í síma 616-7522.

Við hlökkum til að hitta ykkur,

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
Anna R. Möller, formaður FEBG og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ

Garðabær í blóma – 16.apríl 2026

Sjálfstæðisflokkurinn gefur út smáblöð í aðdraganda kosninga. Blöðin munu fylgja með Garðapóstinum. Fyrsta blaðið má sjá hér fyrir neðan:

Garðar Grásteinn – Apríl 2026

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins 2026

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ samþykkti á fundi sínum þann 16. febrúar 2026 tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 16. maí 2026. Listann skipa:

  1. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri
  2. Björg Fenger, formaður bæjarráðs
  3. Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar
  4. Hrannar Bragi Eyjólfsson, bæjarfulltrúi og lögmaður
  5. Stella Stefánsdóttir, varabæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
  6. Birkir Guðlaugsson, lögfræðingur
  7. Jón Þór Eggertsson, verkefnastjóri
  8. Anna R. Möller, formaður Félags eldri borgara í Garðabæ
  9. Ýmir Örn Finnbogason, ráðgjafi
  10. Harpa Rós Gísladóttir, mannauðsráðgjafi
  11. Sigrún Antonsdóttir, umsjónarkennari
  12. Halldór Snær Lárusson, háskólanemi
  13. Berglind Víðisdóttir, verkefnastýra
  14. Páll Árnason, yfirþjálfari
  15. Lára Sif Christiansen, framkvæmdastjóri FÍA
  16. Ásgeir Ágústsson, lögmaður
  17. Inga Rós Reynisdóttir, sérfr. í innri endurskoðun
  18. Dúi Þór Jónsson, körfuboltamaður
  19. Ingibjörg Loftsdóttir, sérfr. í lýðheilsu
  20. Sigurður Sveinn Þórðarson, verkefnastjóri
  21. Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri
  22. Sigríður Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri

Hefjum baráttuna!

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins til sveitarstjórnakosninganna árið 2026 var samþykktur á fundi fulltrúaráðs mánudaginn 16. febrúar.

Við bjóðum félagsmönnum og Garðbæingum öllum að koma og fagna framboðslistanum og hitta frambjóðendur okkar í Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi 7, miðvikudaginn 18. febrúar kl. 18:00.

Boðið verður upp á léttar veitingar – verið velkomin!

Fundur í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ

DCIM100MEDIADJI_0262.JPG
Fundur verður haldinn í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju, Kirkjulundi 3, Garðabæ, mánudaginn 16. febrúar 2026 kl. 17:30.
Dagskrá:
1. Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins við sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí 2026, borin upp til samþykktar.
Vinsamlegast athugið að fundurinn er eingöngu opinn þeim sem setu eiga í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.

Uppstilling í Garðabæ

DCIM100MEDIADJI_0262.JPG

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ samþykkti á fundi sínum í kvöld tillögu stjórnar fulltrúaráðsins um að viðhafa uppstillingu við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ fyrir sveitastjórnarkosningarnar sem fara fram 16. maí 2026.

Á fundinum var skipuð uppstillingarnefnd sem mun nú hefjast handa við það verkefni að stilla upp framboðslista sem borinn verður undir fulltrúaráðið til umræðu og samþykktar í febrúar n.k.

Uppstillingarnefnd skipa:
Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður
Agla Eir Vilhjálmsdóttir
Kristjana Fjóla Sigursteinsdóttir
Skapti Örn Ólafsson
Vordís Eiríksdóttir

Framboð og ábendingar má senda Uppstillingarnefndinni í gegnum tölvupóst á kosningar@gardar.is