Upptaka af fundi með Dómsmálaráðherra

Laugardaginn 6.mars s.l. heimsótti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, okkur í Garðabæinn. Fundurinn fór fram í streymi á síðum allra Sjálfstæðisfélaga í Kraganum. Hér má sjá upptöku af fundinum:

Aðalfundur Fulltrúaráðs

Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.
Þriðjudagur 16. mars 2021, kl. 17:30, Félagsheimili sjálfstæðisfélaganna, Garðabæ.
Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ verður haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisfélags Garðabæjar að Garðatorgi 7, Garðabæ, þriðjudaginn 16. mars 2021, kl. 17:30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gunnar Einarsson ræðir um bæjarmálin.
3. Önnur mál.
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.

Upptaka af fundi með Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur.

Laugardaginn 13.febrúar sl. var Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra gestur okkur í Garðabænum. Fundur hennar fór fram í streymi og var sendur út í samstarfi Sjálfstæðisfélaganna í Kraganum. Fundarstjóri var Kristín Thoroddsen, formaður Sjálfstæðisfélagsins Fram í Hafnarfirði.

Upptöku af fundinum má nálgast hér:

Þjónusta á tímum Covid

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, skrifar:

Álag á framlínufólk hefur verið mikið á liðnu ári og ekki síst hjá starfsfólki sveitarfélaga. Í ljósi þessa er þakkarvert að Garðabær lendir í 1. sæti þegar íbúar eru spurðir um ánægju með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið í samanburði við önnur sveitarfélög. Þetta kemur fram í nýlegum niðurstöðum árlegrar þjónustukönnunar Gallup þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 20 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt. Garðabær lendir einnig í efsta sæti þegar spurt er um ánægju íbúa á heildina litið með sveitarfélagið sem stað til að búa á og þegar spurt er um gæði umhverfisins í nágrenni við heimili.

Garðabær hefur á liðnum árum nýtt niðurstöðurnar til að gera enn betur.  Áfram eru sóknarfæri í að bæta þjónustu við fatlað fólk og eldri borgara í sveitarfélaginu en þeir sem nýta þjónustuna eru ánægðari með hana en aðrir aðspurðir. Ánægjulegt er að Garðabær skorar áfram hátt þegar spurt er um þjónustu við barnafjölskyldur og er þar í 2. sæti á heildina litið eða efst ef tekið er mið af 9 fjölmennustu sveitarfélögunum.

Mikil íbúafjölgun hefur átt sér stað í Garðabæ á liðnu ári og íbúar bæjarins eru núna að nálgast 18 þúsund. Næst mesta fjölgun íbúa á landinu öllu á síðasta ári var í Garðabæ og hlutfallslega var mest fjölgun í Garðabæ í samanburði við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eða um 4,5% fjölgun.  Það er áskorun að halda áfram úti góðri þjónustu um leið og mikil uppbygging á sér stað í bæjarfélaginu. Þegar spurt er um ánægju með skipulagsmál almennt er Garðabær í 1-2. sæti.

Jákvæðni, fagmennska og áreiðanleiki eru gildi Garðabæjar og það má með sanni segja að þau hafi verið í hávegum höfð við að halda úti þjónustu bæjarins á krefjandi tímum sem þessum. Það er vert að þakka fyrir dugnað og umhyggju starfsmanna Garðabæjar um leið bæjarbúum er þakkað fyrir góðar ábendingar um það sem betur má fara. Verkefnið er áfram að bæta það sem betur má fara í okkar annars góða samfélagi.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 12.janúar 2020.

100 Framsækin fyrirheit – Þriðji og síðasti fundur

Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ fyrir kjörtímabilið 2018-2022 eru 100 framsækin fyrirheit.
Þessi fyrirheit eru bæði umfangsmikil og metnaðarfull og voru unnin með þátttöku fjölmargra bæjarbúa sem láta sig hag bæjarins okkar varða.
Eitt fyrirheitið var að halda áfram að eiga opið samtal við íbúa um fyrirheit okkar og efndir, auk þess að fá fram ábendingar og fyrirspurnir.
Stjórnendur fundanna verða þau Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs og Guðfinnur Sigurvinsson, varabæjarfulltrúi.
Endilega sendið okkur spurningar til bæjarfulltrúa í gegnum Facebook síðuna eða á gardar@xd.is
———————————
Þriðji og síðasti fundurinn í fundaröðinni verður 3.nóvember kl. 17:00-18:00.
Fundurinn fer fram í streymi hér á Facebook síðu félagsins.
Dagskrá:
– Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fer yfir fjármál bæjarins
– Almar Guðmundsson, formaður fjölskylduráðs og öldungaráðs
– Sigurður Guðmundsson, formaður skipulagsnefndar og forseti bæjarstjórnar
– Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs

100 Framsækin fyrirheit – Annar fundur 27.okt

Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ fyrir kjörtímabilið 2018-2022 eru 100 framsækin fyrirheit.

Þessi fyrirheit eru bæði umfangsmikil og metnaðarfull og voru unnin með þátttöku fjölmargra bæjarbúa sem láta sig hag bæjarins okkar varða.

Eitt fyrirheitið var að halda áfram að eiga opið samtal við íbúa um fyrirheit okkar og efndir, auk þess að fá fram ábendingar og fyrirspurnir.

Stjórnendur fundanna verða þau Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs og Guðfinnur Sigurvinsson, varabæjarfulltrúi.

Endilega sendið okkur spurningar til bæjarfulltrúa í gegnum Facebook síðuna eða á gardar@xd.is

———————————

Annar fundurinn í fundaröðinni verður 27. október kl. 17:00-18:00. Fundurinn fer fram í streymi hér á Facebook síðu félagsins.

Dagskrá:
– Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fer yfir fjármál bæjarins
– Gunnar Valur Gíslason, formaður menningar- og safnanefndar
– Stella Stefánsdóttir, formaður stjórnar Hönnunarsafns Íslands
– Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar

100 Framsækin fyrirheit – Upptaka af fyrsta fundi

Hér má finna upptöku af fyrsta fundi í fundaröð Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ um 100 framsækin fyrirheit flokksins á kjörtímabilinu 2018-2022:

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar 2020

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar 2020 var haldinn þann 22.september.

Ný stjórn var kjörin á fundinum, en í henni sitja eftirfarandi aðilar:

Sigþrúður Ármann, formaður
Bjarni Th. Bjarnason, varaformaður
Laufey Johansen
Torfi Geir Símonarson
Eva Björg Torfadóttir
Sófus Gústavsson
Jóhann Jónsson
Bryndís Kristjánsdóttir
Helga Ólafsdóttir
Jóel Ísak Jóelsson
Eydís Sigurðardóttir
Vera Rut
Haukur Þór Hauksson
Sigríður Indriðadóttir