Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ tryggði sér verulegt aukið fylgi í nýafstöðnum kosningum til sveitarstjórna. Flokkurinn hlaut tæp 58% atkvæða og 8 menn kjörna eða hreinan meirihluta í bæjarstjórn Garðabæjar. Um er að ræða fylgisaukningu sem nemur nær níu prósentustigum frá kosningunum árið 2022. Þá jókst kjörsókn verulega og var 74% en hún var aðeins 64% árið 2022.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins kjörtímabilið 2026-2030 eru eftirfarandi:
1. Almar Guðmundsson
2. Björg Fenger
3. Margrét Bjarnadóttir
4. Hrannar Bragi Eyjólfsson
5. Stella Stefánsdóttir
6. Birkir Guðlaugsson
7. Jón Þór Eggertsson
8. Anna R. Möller
