Prófkjör: Auglýst eftir framboðum

Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fer laugardaginn 5. mars 2022.

Fyrir frambjóðendur

Frambjóðendur eru hvattir til að kynna sér vel prófkjörsreglur flokksins sem og þau ákvæði sem finna má í skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins varðandi prófkjör og framboðsmál.

Frambjóðandi skal vera kjörgengur í næstu sveitarstjórnarkosningum, flokksbundinn sjálfstæðismaður og búsettur í Garðabæ. Hver frambjóðandi skal skila inn skriflegum meðmælum með framboði sínu frá 20 flokksbundnum sjálfstæðismönnum búsettum í Garðabæ, hið minnsta en að hámarki 40 meðmælum.  Tekið skal fram að enginn meðmælandi má mæla með fleirum en 8 frambjóðendum.

Eyðublað fyrir meðmælendur, sjá hér

Hver og einn frambjóðandi skal skila ljósmynd og allt að 200 orða kynningartexta með framboði sínu. Efnið verður notað til að kynna framboðið. Frambjóðendum er að auki heimilt að láta fylgja með ferilskrá og senda með hlekki inn á heimasíðu, samfélagsmiðla og annað sem tengist framboði þeirra.

Skil á framboði:

Framboðsfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 31. janúar 2022.

Framboði er skilað inn rafrænt með því að smella hér. 

 

Nánari upplýsingar veitir Haukur Þór Hauksson formaður kjörnefndar í síma 618-1279 eða í gegnum netfangið haukurthorhauksson@gmail.com

Reglur og almenn skilyrði