Prófkjör: Kynningarfundir fram undan

Fram undan er æsispennandi prófkjörsbarátta!

Sjálfstæðisfélagið stendur fyrir ýmsum leiðum sem frambjóðendur geta nýtt sér til að kynna sig. Í lok vikunnar koma út viðtöl við alla frambjóðendur á hlaðvarpsformi og fram undan eru streymisfundir þar sem þeir geta kynnt sig og sín stefnumál. Streymisfundirnir fara fram á Facebook síðu félagsins.

Fyrsti fundurinn er næsta fimmtudag, nánar hér: Prófkjör 2022: Frambjóðendur kynna sig
Næsti fundur er svo á laugardag, þar sem oddvitaefnin mætast: Prófkjör 2022: Oddvitar mætast
Í næstu viku höldum við svo áfram með kynningarfundi á þriðju- og fimmtudag: Prófkjör 2022: Frambjóðendur kynna sig og Prófkjör 2022: Frambjóðendur kynna sig
Þið getið skoðað lista yfir frambjóðendurna og fundið tengla á þeirra miðla á www.gardar.is/frambjodendur

Við hlökkum til að leyfa Garðbæingum að kynnast frambjóðendum og vonumst eftir góðri þátttöku í prófkjörinu þann 5. mars!