Þú getur haft samband við okkur í gegnum tölvupóst á gardar@xd.is
Ef málið varðar greiðsluseðil frá okkur viljum við benda á að greiðsluseðlar vegna félagsgjalda eru sendir út á alla skráða flokksmenn Sjálfstæðisflokksins sem búsettir eru í Garðabæ. Í mars voru einnig sendir út valfrjálsir seðlar fyrir félagsmenn sem vilja styrkja félagið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar hefur ekki beinan aðgang að flokksskrá vegna persónuverndarlaga. Á www.xd.is/minar-sidur/ getur þú skoðað þína skráningu hjá Sjálfstæðisflokknum og gert á henni breytingar, kjósir þú svo.
Greiðsluseðlar frá Sjálfstæðisfélaginu eru valfrjálsir og einfalt er að fela seðilinn í netbanka ef þú vilt ekki greiða hann. Ógreiddir seðlar verða felldir niður að einhverjum vikum liðnum. Seðlarnir fara ekki í vanskil og safna ekki dráttarvöxtum.
Félagsgjöldin og kosningastyrkir eru mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins og við hvetjum þig til að greiða gjaldið hafir þú tök á því. Nánar um mikilvægi félagsgjalda hér.