Í forystu felst ábyrgð
Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2018 gáfum við frambjóðendur Garðbæingum 100 framsækin fyrirheit. Í aðdraganda kosninganna sem verða í maí 2022 munu frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins birta bæjarbúum efndir þessara fyrirheita okkar.
Ég leita eftir stuðningi sjálfstæðisfólks í Garðabæ til þess að skipa 3.-4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kosningunum nú í vor og býð fram krafta mína til að vinna bæjarfélaginu gagn á næsta kjörtímabili.
Framtíðarsýn mín og leiðarljós fyrir samfélagið í Garðabæ:
- Stöðugur og traustur fjárhagur, lágar skattálögur,
- fjölbreytt þjónusta, góðir skólar með framsækið skólastarf, leikskólar um leið og foreldraorlofi lýkur,
- öflug íþrótta-, tómstunda- og menningarstarfsemi, stuðningur við frjáls félagasamtök,
- markviss uppbygging íbúða fyrir unga fólkið,
- öruggt ævikvöld eldra fólksins,
- blómstrandi atvinnulíf,
- hreint loftslag og verðmætt umhverfi til útivistar.
Síðastliðin átta ár hef ég sem fulltrúi í bæjarstjórn Garðabæjar lagt mikla áherslu á farsælan framgang sameiningar Garðabæjar og Álftaness. Markmið mitt og okkar allra er að sameiningin í heild takist sem best fyrir alla Garðbæinga.
Ég vil leggja ennþá meira af mörkum við mótun samfélagsins okkar og býð mig fram til að vera áfram hluti af sterkri liðsheild í bæjarstjórn Garðabæjar – í þjónustu fyrir alla Garðbæinga.