Við ætlum að halda áfram að veita toppþjónustu í Garðabæ og við höfum skýr markmið að vera besti staðurinn til að búa á, nú sem endranær. Við viljum vera samfélag sem veitir framúrskarandi þjónustu til ánægðra íbúa.
Garðabær stendur vel fjárhagslega. Skuldaviðmið er lágt og vel undir opinberum viðmiðunarmörkum, en hefur hækkað samhliða vexti bæjarins undanfarin ár. Þrátt fyrir það er ljóst að langvinn óvissa í efnahagsmálum hefur haft mikil áhrif á rekstur Garðabæjar eins og annarra sveitarfélaga.
Áfram toppþjónusta í Garðabæ
Það er því áskorun okkar sem erum í framvarðasveit starfsfólks bæjarins að standa undir þessu þjónustuloforði. Það ætlum við að gera þrátt fyrir að síðustu ár hafi fjármögnun þessara góðu verka verið stöðugt erfiðari. Við höfum séð vexti, verðbólgu og laun hækka umtalsvert.
Kröfur til bæjarins hafa aukist samfara gleðilegum og markvissum vexti bæjarins með mikilli fjölgun barnafjölskyldna í bænum.
Við höfum því sett í forgrunn að vernda þjónustuna og okkar þjónustuloforð. Um leið stöndum við vörð um ábyrgan rekstur og sterka stöðu bæjarins.
Við þurfum að bregðast við og leggjum áherslu á aðgerðir til að styrkja grunnrekstur bæjarins. Annars vegar með hagræðingu í rekstri og hins vegar með hærra álagningarhlutfalli útsvars.
Hvað þýðir það? Jú, bæjarstjórn hefur nú kynnt hagræðingaraðgerðir sem nema um 500 m.kr. á ársgrundvelli eða um 2% af rekstrar útgjöldum bæjarins ásamt því að hækka útsvarshlutfall. Með þessu teljum við að við séum að skapa traustar undirstöður fyrir áframhaldandi sterkra stöðu bæjarins á öllum sviðum.
Þess vegna förum við varlega af stað. Við hækkum útsvar hóflega samhliða því að við horfum á rekstur bæjarins og hagræðum. Einnig drögum við úr framkvæmdum.
Íbúar í forgrunni
Það gerist auðvitað ekki oft að við í Garðabæ hækkum skatta. Við metum þó stöðuna núna þannig að þetta sé nauðsynlegt skref og að þetta sé rétti tíminn.
En ef skuldaviðmið er lágt og reksturinn stendur vel, hvers vegna erum við þá að grípa inn í?
Jú, því við viljum búa í haginn fyrir framtíðina og standa vörð um trausta fjárhagsstöðu bæjarins. Í því samhengi vil ég árétta að enn eru stór mál óútkljáð milli ríkis og sveitarfélaga, þar með Garðabæjar, um fjármögnun mikilvægra verkefna.
Þó Garðabær standi vel þá er það skylda okkar að laga reksturinn að breyttum forsendum og þeim efnahagsaðstæðum sem blasa við. Það höfum við áður gert með góðum árangri, og staðið þannig vörð um hátt þjónustustig og lífsgæði fyrir íbúa í bænum.
Með þessu getum við staðið vörð um þjónustuna okkar. Við erum framúrskarandi á því sviði og ætlum að vera það áfram. Áherslan er áfram á mikilvæga innviðauppbyggingu og endurbætur á skólahúsnæði.
Við vitum líka að þetta eru tímabundnar aðstæður en við þeim þarf samt að bregðast. Álögur eru enn lágar í Garðabæ, lægstar af stærstu sveitarfélögunum og þó víðar væri leitað. Með framlagðri fjárhagsáætlun erum við að sýna ábyrgð í rekstri en erum samt enn að sækja fram með grandvörum og traustum hætti.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum, 10.nóvember 2023.