Við bjóðum eldri íbúum Garðabæjar í rútuferð um bæinn með frambjóðendum okkar, til að sýna ykkur þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað og þá framtíðarsýn sem við höfum fyrir Garðabæ.
Farið verður þriðjudaginn 28. apríl frá félagsmiðstöðinni við Lambamýri kl. 13, Jónshúsi kl. 13:10, Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi 7 kl. 13:20 og Urriðaholtsskóla kl. 13:30. Ferðinni lýkur um kl. 15:00. Stoppað verður í kaffibolla og meðlæti á leiðinni.
Ég hvet ykkur öll til að skrá ykkur fyrir kl. 12, mánudaginn 27. apríl með því að senda tölvupóst með nafni, símanúmeri og brottfararstað á gardar@xd.is. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í síma 616-7522.
Við hlökkum til að hitta ykkur,
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
Anna R. Möller, formaður FEBG og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
