Salur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar að Garðatorgi 7 er leigður út fyrir fundi og minni veislur, t.d. skírnir eða fermingar. Í salnum er ágæt aðstaða, nýtt eldhús með góðu borðplássi, ísskáp, bakarofn og uppþvottavél. Þá eru til staðar eldunarhellur.
Í salnum eru stólar og borð fyrir um 60 manns, þrjú háborð (sveppaborð) og stór skjár til að sýna myndefni.
Salurinn er eingöngu leigður út fyrir dagveislur og fundi á tímabilinu 08:00-21:00.
Nánari upplýsingar og bókanir fara fram í tölvupósti á gardar@xd.is