Á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í kvöld var samhljóða samþykkt tillaga stjórnar fulltrúaráðsins um að viðhafa prófkjör við val á lista fyrir sveitastjórnarkosningar í vor.
Við sama tækifæri tilkynnti Gunnar Einarsson bæjarstjóri að hann hyggist hætta í vor. Stjórn Sjálfstæðisfélagsins sat fyrir með Gunnari á meðfylgjandi mynd við þetta tilefni. Gunnar hefur verið bæjarstjóri í 17 ár næsta vor. Gunnari eru færðar hugheilar þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu bæjarbúa síðustu áratugi.
Gunnar sagði við þessi tímamót:
„Ég kom til starfa hjá Garðabæ 25 ára gamall og starfaði sem íþrótta- og tómstundafulltrúi og síðar sem forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs áður en ég var ráðinn bæjarstjóri árið 2005. Ég hef varið rúmlega 40 árum starfsævi minni í þjónustu við Garðbæinga. Á þessu langa tímabili hef ég tekið virkan þátt í uppbyggingu bæjarins bæði sem embættismaður, stjórnmálamaður og þátttakandi í félagsstarfi innan bæjarmarkanna. Jafnframt hef ég fengið tækifæri frá vinnuveitandanum Garðabæ á að mennta mig til hæstu gráðu.“
Þá segir Gunnar þakklæti sér efst í huga við slík tímamót. “Þakklæti fyrir að fá tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið Garðabæ, að starfa með frábæru samstarfsfólki hvort heldur í stjórnmálum og/eða í starfi mínu sem embættismaður og síðast en ekki síst almennt góð samskipti við bæjarbúa.“