Tólf einstaklingar gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, fyrir Alþingiskosningarnar 2021, sem fram fer dagana 10., 11. og 12. júní næstkomandi.
Við lok framboðsfrestsins klukkan 16:00 í dag höfðu tólf framboð borist. Öll framboðin voru úrskurðuð gild.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fagnar þeim áhuga sem sjálfstæðismenn hafa sýnt prófkjörinu og óskar frambjóðendunum öllum góðs gengis.
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi eru í stafrófsröð:
- Arnar Þór Jónsson, Garðabæ
- Bergur Þorri Benjamínsson, Kópavogi
- Bjarni Benediktsson, Garðabæ
- Bryndís Haraldsdóttir, Mosfellsbæ
- Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Hafnarfirði
- Hannes Þórður Þorvaldsson, Kópavogi
- Jón Gunnarsson, Kópavogi
- Karen Elísabet Halldórsdóttir, Kópavogi
- Kristín Thoroddsen, Hafnarfirði
- Óli Björn Kárason, Seltjarnarnesi
- Sigþrúður Ármann, Garðabæ
- Vilhjálmur Bjarnason, Garðabæ