Sjálfstæðisfélögin í Garðabæ og Kópavogi boða til sameiginlegs fundar á laugardaginn 27. apríl kl. 11:00 – 13:00 í Salnum í Kópavogi. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, fara yfir stöðu mála varðandi þriðja orkupakkann. Þau munu skýra sín sjónarmið og draga fram mögulegar sviðsmyndir. Fundarstjóri verður Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Á fundinum munu Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, atvinnuvega-, ferðamála-, nýsköpunar- og dómsmálaráðherra fara yfir stöðu mála, skýra sín sjónarmið og draga fram mögulegar sviðsmyndir varðandi þriðja orkupakkann.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs