Gunnar Valur Gislason

Í forystu felst ábyrgð  

Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2018 gáfum við frambjóðendur Garðbæingum 100 framsækin fyrirheit. Í aðdraganda kosninganna sem verða í maí 2022 munu frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins birta bæjarbúum efndir þessara fyrirheita okkar. 

Ég leita eftir stuðningi sjálfstæðisfólks í Garðabæ til þess að skipa 3.-4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kosningunum nú í vor og býð fram krafta mína til að vinna bæjarfélaginu gagn á næsta kjörtímabili.  

 Framtíðarsýn mín og leiðarljós fyrir samfélagið í Garðabæ: 

  • Stöðugur og traustur fjárhagur, lágar skattálögur,  
  • fjölbreytt þjónusta, góðir skólar með framsækið skólastarf, leikskólar um leið og foreldraorlofi lýkur, 
  • öflug íþrótta-, tómstunda- og menningarstarfsemi, stuðningur við frjáls félagasamtök, 
  • markviss uppbygging íbúða fyrir unga fólkið, 
  • öruggt ævikvöld eldra fólksins, 
  • blómstrandi atvinnulíf, 
  • hreint loftslag og verðmætt umhverfi til útivistar. 

 Síðastliðin átta ár hef ég sem fulltrúi í bæjarstjórn Garðabæjar lagt mikla áherslu á farsælan framgang sameiningar Garðabæjar og Álftaness. Markmið mitt og okkar allra er að sameiningin í heild takist sem best fyrir alla Garðbæinga. 

Ég vil leggja ennþá meira af mörkum við mótun samfélagsins okkar og býð mig fram til að vera áfram hluti af sterkri liðsheild í bæjarstjórn Garðabæjar – í þjónustu fyrir alla Garðbæinga. 

gunnarvalur@ithaka.is
Facebook