Aðalfundur og afmælishóf

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar verður haldinn miðvikudaginn 5.júní kl. 17:00. Dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Að loknum aðalfundi um kl. 17:30 býður stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar til afmælisfögnuðar.
Sjálfstæðisfélagið var stofnað þann 3.júní árið 1959 og fagnar því 65 ára afmæli um þessar mundir. Auk þess fagnar Sjálfstæðisflokkurinn 95 ára afmæli á árinu og lýðveldið Ísland 80 ára afmæli. Það er því ærið tilefni til að hittast og skála.
Heiðursgestur á afmælisfögnuðinum er Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Aðalfundurinn og afmælishófið fer fram í félagsheimilinu að Garðatorgi 7.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar